Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Arna Sigríður í 19. sæti í sprettgöngunni og komst ekki áfram

Read Full Article →

Arna Sigríður Albertsdóttir komst ekki áfram úr undankeppni sprettgöngunni, sinni fyrstu grein á Vetrarólympíumóti fatlaðra. Arna Sigríður endaði í 19. sæti af 19 keppendum í sitjandi flokki en tólf hröðustu tímarnir komust áfram í undanúrslit. Þetta er fyrsta Vetrarólympíumót Örnu sem hefur þó reynslu af Ólympíumótum en hún keppti í handahjólreiðum í Tókýó 2021 og er nýlega farin að keppa í skíðagöngu. Hér fyrir neðan má sjá lokasprett Örnu og þegar hún kemur í mark. Arna Sigríður Albertsdóttir keppti í sinni fyrstu grein á Vetrarólympíumóti fatlaðra í morgun. Hún var þá ein 19 keppenda í sitjandi sprettgöngu og endaði í 19. sæti. Seinni grein hennar á mótinu er strax á morgun. Í sprettgöngunni er farinn 1024 metra langur hringur og tólf hröðustu tímarnir fara áfram í undanúrslitin. Í úrslitunum eru það svo sex hröðustu tímarnir í undanúrslitunum sem fá þátttökurétt. Margfaldi ólympíumeistarinn Oksana Masters frá Bandaríkjunum var fljótust í þessari undankeppni og kom í mark á 2 mínútum og 29,32 sekúndum. Arna Sigríður fór hringinn á 3 mínútum og 38,98 sekúndum en Indira Liseth sem varð tólfta og síðust inn í undanúrslit kom í mark á 2 mínútum og 50,75 sekúndum. Arna hefur þó ekki lokið keppni á Vetrarólympíumótinu því á morgun mun hún keppa í 10 kílómetra göngunni. Keppni hefst klukkan 8:40 í fyrramálið og verður í beinni á RÚV.

Share this article