Arna Sigríður Albertsdóttir keppti í tíu kílómetra sitjandi skíðagöngu á Vetrarólympíumóti fatlaðra í dag. Um miðbik brautarinnar er krefjandi brekka og þar missti hún jafnvægið og féll á hliðina. Í kjölfarið þurfti að skipta um skíði sem vitanlega tafði hana. Hún varð nítjánda í mark af nítján keppendum. Tími Örnu var 40:01,08. Oksana Masters frá Bandaríkjunum og Kim Yunji frá Suður-Kóreu börðust um gullið en svo fór að Masters varð fyrst á 26:31,6, 20 sekúndum á undan Yunji. Það er skammt stórra högga á milli því í gærmorgun keppti Arna Sigríður í sprettgöngu þar sem hún endaði í 19. sæti. Skíðagangan var hennar síðari grein á leikunum og því hefur Arna Sigríður lokið keppni.