Arna Sigríður Albertsdóttir keppir í síðari grein sinni á Vetrarólympíumóti fatlaðra í dag þegar hún keppir í tíu kílómetra sitjandi skíðagöngu. Hún keppti í sprettgöngu í gær og endaði í 19. sæti. Þetta er fyrsta Vetrarólympíumót hennar en hún hefur þó keppt á sumarleikum í handahjólreiðum. Keppni hefst klukkan 8:40 og er sýnd beint á RÚV og í spilaranum hér fyrir neðan. Arna Sigríður Albertsdóttir keppir í tíu kílómetra sitjandi skíðagöngu í dag. Keppni hefst innan skamms því ræst verður klukkan tuttugu mínútur fyrir níu. Sýnt verður beint frá keppninni á RÚV.