Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í kvöld: Íslandsmótið í klifri

Read Full Article →

Íslandsmeistarar verða krýndir í grjótglímuklifri í Hafnarfirði í kvöld. RÚV sýnir beint frá Íslandsmótinu þar sem færustu klifrarar landsins munu takast á. Í grjótglímu vita keppendur ekki fyrir fram hvernig brautin er hönnuð. Gefinn er átta mínútna skoðunartími til að virða brautina fyrir sér áður en umferðin hefst. Hver keppandi mun svo hafa fjórar mínútur til að glíma við hverja leið. Engin takmörk eru á því hversu oft keppendur mega reyna við leiðirnar en stigafjöldi fer eftir því hversu margar tilraunir eru notaðar til að komast á toppinn og þar fjölgar stigunum eftir því sem tilraunirnar eru færri. Átta keppendur komust áfram úr undankeppninni sem fram fór fyrir viku. Í kvennaflokki þykja Lukka Mörk, Agnes Matthildur Helgadóttir og Jenný Þóra Halldórsdóttir sigurstranglegastar en karlamegin eru það Pauli Mercado Guðrúnarson og Greipur Ásmundarson sem verða líklegast í baráttunni um titilinn. Bein útsending hefst frá kvennakeppninni á RÚV 2 klukkan 17:50 og klukkan 20:00 hefst útsending frá karlahlutanum.

Share this article