Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Dýraníð líðst almennt á Íslandi“

Read Full Article →

Lögmaður segir eftirliti með velferð dýra í verksmiðjubúskap hér á landi ábótavant. Myndefni sem birtist í Kveik á þriðjudag, sem sýni aðstöðu dýra í minkabúi, sé sláandi – en komi þó ekki á óvart. Eftirliti ábótavant „Við erum að sjá birtingarmynd á mjög stóru vandamáli á Íslandi sem er það að hér á landi eiga sér stað kerfisbundin brot gegn lögum sem eiga að tryggja vernd og velferð dýra á hverjum einasta degi. Dýraníð líðst almennt á Íslandi,“ segir Katrín Oddsdóttir, lögfræðingur sem hefur sérhæft sig í dýraverndarmálum. Hún segir að eftirlitsstofnanir hafi ekki burði til að taka á slíkum brotum, þrátt fyrir skýrar heimildir í lögum. Brot gegn lögum um dýravernd séu sjaldan kærð til lögreglu eða starfseminni lokað. Þá sé fátítt að beitt sé dagsektum, þrátt fyrir að það sé eitt af þeim ráðum sem virki. „Ég held að það sé búið að myndast ákveðið langlundargeð innan eftirlitsstofnana um það að manneskjan sem vill nýta sér dýrið í hagnaðarskyni njóti vafans umfram dýrið sjálft,“ segir Katrín.. „Og það sem er enn verra er, það er búið að túlka lögin þannig að dýraverndarsamtök, sem eru þá einu aðilarnir sem geta látið sig þessi mál varða fyrir hönd dýranna því þau hafa ekki rödd, þau eru ekki talin eiga aðild að þessum málum.“ Enginn sem geti verið málsvari fyrir dýrin Katrín tekur sem dæmi mál um blóðmerahald sem upp kom í fyrra. MAST hafi kannað málið og ekki vísað því til lögreglu, þrátt fyrir augljóst brot á lögum um velferð dýra, segir Katrín. „Þá gátu dýraverndunarsamtök ekki kært þá ákvörðun til ráðuneytisins og fengið hana endurskoðaða vegna þess að það var bara talið að þau ættu ekki aðild að máli. Þá hugsar maður: Átti blóðmerin sjálf, sem varð fyrir ofbeldinu, að kæra málið? Hvaða vitleysa er þetta?“ spyr Katrín. Hún segir að almenn reglu í landinu að allar stjórnvaldsákvarðanir skuli sæta endurskoðun æðra stjórnvalds. Búið sé að skjóta þessum málaflokki, dýravernd, undan þeirri reglu. Katrín segir það óásættanlegt. „Þannig að það eru einhvern veginn engar leiðir til að knýja fram réttlæti og það að þessum lögum sé fylgt. Það skiptir ekki máli hvort við erum að horfa á hvalveiðar, laxeldi, grísabú eða minkana, það er alltaf á eina bókina lært. Það er verið að fara illa með dýrin.“ Vill að lodýrarækt verði stöðvuð Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hyggst taka lög um velferð dýra til heildarendurskoðunar og boðar nýtt frumvarp næsta vetur. Katrín vonast til þess að ráðherra stígi fast til jarðar. „Það er augljóst mál að það þarf að stöðva þessa starfsemi. Þetta er bara til óheilla fyrir samfélagið, og ekki síst þessi dýr. Því fyrr þeim mun betra,“ segir Katrín. „En mér finnst miklu mikilvægara ef ráðherra getur sagst ætla að skoða málaflokkinn í heild sinni og hvers vegna það viðgangist að velferð dýra sé aldrei í forgangi þegar kemur að þessum stóru verksmiðjubúskaparstöðum, heldur fái fólk endalausa sjensa til að fara illa með dýr og búa til peninga með því.“

Share this article