Það er brýnt að herða lög um velferð dýra og auka eftirlit, segir formaður Dýraverndarsamtaka Íslands. Myndir sem sýndar voru í fréttaskýringarþættinum Kveik í gær sýni raunveruleika loðdýra í haldi. Pottur víða brotinn Í þætti Kveiks um loðdýrarækt og aðbúnað í minkabúum kom fram að dæmi væru um að minkarnir væru alla ævi í litlum búrum við slæmar aðstæður. Sýnd voru blóðug og sár dýr sem sum höfðu nagað sig inn að beini vegna streitu og kvíða. „Þetta eru náttúrlega bara sláandi myndir en sýna raunveruleika dýra í loðdýrahaldi. Þetta er svona úti um allan heim,“ segir Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands. „Dýrin eru haldin í hræðilegum aðstæðum, pínulitlum vírbúrum, og þau verða mjög stressuð og líður mjög illa og þá gerast alls konar hlutir – þau geta farið að naga sjálf sig og orðið fyrir sjálfsskaða, þannig að það er bara mjög alvarlegt að sjá þetta.“ Linda segist fagna umfjöllun Kveiks. Víða sé pottur brotinn þegar kemur að velferð dýra og iðnaði. „Við eigum ekki að sætta okkur við að svona meðferð á dýrum viðgangist hjá neinum. Við verðum að muna það að um er að ræða fyrirtæki sem er að hagnast á því að nota dýr,“ segir Linda. „Fyrirtækin verða að standast þær kröfur sem gerðar eru í lögum um velferð dýra og í reglugerðum. Og ef ekki eru gerðar úrbætur þá á auðvitað að stöðva starfsemina.“ Dýraverndarsambandið er með fjölda mála á sínu borði er varðar dýravelferð segir Linda. Hingað til hafi samtökin þó ekki beitt sér sérstaklega gegn loðdýrarækt. „En að sjálfsögðu erum við sammála þeirri nálgun að það eigi að leggja af loðdýrahald á Íslandi.“ Stórefla þurfi eftirlit með velferð dýra Linda segir brýnt að herða lög um velferð dýra og bæta reglugerðir. Þá þurfi að stórefla eftirlit. „Ekki bara í verksmiðjubúskap heldur líka almennt séð í búfjárhaldi. Það líður alltof langur tími milli heimsókna, eins og við sjáum í þættinum um loðdýrahald þar sem þetta er rosalegur verksmiðjubúskapur. Og það líða tvö ár á milli heimsókna frá eftirlitsaðilum. Þetta er ekki aðhald. Það er svo ofboðslega margt sem getur gerst í svona iðnaði,“ segir Linda. Myndirnar sem sýndar voru í Kveik voru teknar í október og nóvember á þremur minkabúum af sex sem þá voru starfandi. Fimm bú af sex hættu starfsemi í lok síðasta árs. Aðeins eitt bú er enn starfrækt hér á landi. „ Atvinnuvegaráðuneytið og stjórnvöld verða að fara að leggja meiri áherslu á dýravelferð og gera Matvælastofnun kleift að vinna þessa vinnu. Þau eru alltof fá sem eru að sinna þessu. Ég hef fulla trú á að starfsfólkið þarna, sem fer í svona starf að sinna eftirliti með velferð dýra, vilji dýrum vel. En þetta er ofboðslega stórt verkefni, fyrir ofboðslega fáa starfsmenn. Það verður bara að taka á því og breyta því.“