Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ferðaveður getur víða orðið slæmt á morgun

Read Full Article →

Hríðarveður gæti sett strik í reikninginn hjá þeim sem ætla að fara á milli staða á morgun. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar vekur athygli á því að í fyrramálið verður blint og erfið akstursskilyrði í norðanhríð á fjallvegum á Vestfjörðum, til dæmis á Þröskuldum. Sömuleiðis verður hríð austantil á heiðum, og eru Fjarðarheiði og Fagridalur tiltekin sérstaklega. „Svo bætast flestar heiðar einnig við á norðanverðu landinu síðdegis á morgun,“ segir í ábendingu Daníels Þorlákssonar veðurfræðings. Það á til dæmis við um Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Bílar á ferð á Fjarðarheiði.RÚV / Rúnar Snær Reynisson

Share this article