Arion banki hefur opnað á óverðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum að nýju, eftir fjögurra mánaða hlé vegna óvissu í kjölfar vaxtadóms Hæstaréttar. Arion tilkynnti þann 10. nóvember um breytt framboð íbúðalána. Bankinn hætti að bjóða upp á óverðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum í nóvember sl. vegna óvissu sem skapaðist í kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar í vaxtamáli gegn Íslandsbanka. Hann bauð þó áfram upp á óverðtryggð lán með fasta vexti til þriggja ára. Sjá einnig Arion opnar á verðtryggð lán Í tilkynningu sem Arion birti á vef sínum í hádeginu í dag kemur fram að viðskiptavinum bankans standi nú þrír meginvalkostir til boða þegar kemur að nýjum íbúðalánum: Óverðtryggð íbúðalán með breytilega vexti – lánstími allt að 40 ár Óverðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja ára – lánstími allt að 40 ár Verðtryggð íbúðalán með fasta vexti til þriggja ára í senn – lánstími allt að 30 ár Hvað óverðtryggðu íbúðalánin með fasta vexti varðar, þá er tekið fram að að fastvaxtatímabilinu loknu taka við þeir breytilegu vextir bankans sem í boði eru á þeim tíma. Umrædd lán eru með uppgreiðslugjaldi á fastvaxtatímabilinu en eftir að breytilegir vextir taka við er ekki uppgreiðslugjald. Arion banki býður einnig viðskiptavinum sem kjósa óverðtryggð lán en vilja lækka greiðslubyrði upp á valkostinn greiðslufestu . Þegar greiðslufesta er sett á óverðtryggt lán þá er föst fjárhæð greidd í tólf mánuði, sem er lægri en mánaðarleg greiðsla samkvæmt skilmálum lánsins. Mismunurinn er lagður við höfuðstól lánsins, sem leiðir til hækkunar lánsins. Hægt er að velja hvort fasta mánaðarlega greiðslan miðist við 1, 2, 3 eða 4% lægri vexti en lánið ber í dag.