Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Arion banki breytir vöxtum á íbúðalánum

Read Full Article →

Óverð­tryggðir íbúðalána­vextir Arion banka, fastir til þriggja ára, hækka um 0,50 pró­sentu­stig og verða 8,75%. Breytingin nær ein­göngu til nýrra lána og tekur gildi í dag. Arion banki hefur ákveðið að hækka óverð­tryggða íbúðalána­vexti sem eru fastir til þriggja ára. Vextirnir hækka um 0,50 pró­sentu­stig og verða 8,75%. Breytingin tekur gildi í dag og nær ein­göngu til nýrra íbúðalána. Í til­kynningu bankans segir að hækkunin skýrist fyrst og fremst af auknum fjár­mögnunar­kostnaði bankans. Vaxta­breytingar útlána Arion banka taki al­mennt mið af fjár­mögnunar­kostnaði hverju sinni, en einnig öðrum þáttum, meðal annars útlánaáhættu. Fjármögnunarkostnaður bankans fylgir að hluta til stýrivöxtum Seðlabankans en einnig hafa aðrar fjármögnunarleiðir umtalsverð áhrif, svo sem innlán viðskiptavina, markaðsfjármögnun, erlend skuldabréfaútgáfa og eiginfjárgerningar, segir í tilkynningunni.

Share this article