Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að hækkandi verð á hráolíu á heimsvísu komi til með að hafa efnahagsleg áhrif hér á landi og þá meðal annars á verðbólgu. Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað mikið eftir að árásir Bandaríkjanna og Ísrael á Íran hófst. „Ísland sem hagkerfi er háð orku, mjög háð orku, stórir atvinnuvegir hjá okkur byggja á því. Við erum með mikla flutninga vegna legu okkar þannig að það er líklegt að þetta muni hafa töluverð áhrif hjá okkur,“ segir hann. Daði telur þó að innflutt verðbólga sem hlýst af hækkandi olíuverði hafi lítið með hagstjórn á Íslandi að gera. „En hún gerir verkefnið okkar ekki auðveldara,“ segir hann. Aðspurður hvort hann telji olíufélög hérlendis hafa verið of fljót að grípa til verðhækkana segir hann mögulegt að það bendi til lágrar birgðastöðu. „Það er auðvitað alltaf svolítið skrýtið þegar kostnaðurinn hækkar umsvifalaust sem bendir þá til þess að engar birgðir séu til. Auðvitað getur verið að fyrir því sé fótur en þá reiknum við líka með því að lækkanir muni skila sér mjög hratt,“ segir Daði. Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir að hátt olíuverð á heimsvísu gæti aukið verðbólgu hér á landi. Mögulega komi það til með að hafa áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku. Fylgjast vel með verðþróun eldsneytis Olíufélögin hafa áður verið gagnrýnd fyrir það sem virðist vera tilhneiging til að hækka olíuverð snögglega eftir að heimsmarkaðsverð hækkar en að þau séu sein til að lækka eldsneytisverð þegar olíuverð lækkar aftur. „Eins og ég segi, það geta verið málefnalegar ástæður fyrir því ef birgðir eru mjög litlar að olíuverð breytist umsvifalaust en þá ætti það líka vera þannig að um leið og olíuverð lækkar þá ætti verð á eldsneyti að lækka og við munum fylgjast náið með því,“ segir Daði. Það verði gert í samráði við verkalýðshreyfinguna. Eftirlit hafi verið haft með eldsneytisverði eftir að kílómetragjaldið var innleitt. „En svo höfum við líka mælingar Hagstofunnar,“ segir Daði Már sem telur mögulegt að hækkandi olíuverð hafi áhrif á stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans sem kynnt verður í næstu viku.