Innlent | Morgunblaðið | 5.3.2026 | 9:55 Hækkanir muni hafa veruleg áhrif Verphækkanir m.a. á eldsneyti er fyrirsjáanlegar hér á landi vegna stríðsátakanna í Mið-Austulöndum. mbl.is/Ómar Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Nú, þegar við erum að horfa upp á verð á olíu, gasi og fleiri orkugjöfum rjúka upp á heimsmarkaði, þá er það alveg ljóst að það mun hafa verulegar afleiðingar fyrir okkur Íslendinga, verði þessi stríðsátök langvarandi,“ segir Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins í samtali við Morgunblaðið. Leitað var eftir hans sjónarmiðum hvað varðar afleiðingar hækkana á eldsneytisverði og áhrif þess á verðbólgu og kjaramál hér á landi sem og óvissu um framhaldið. Mikil áhrif á vísitölu „Hér komum við alltaf að hinu klassíska, sem er að olíuverð hefur mjög mikil áhrif á vísitölu neysluverðs hér á landi, vegna staðsetningar landsins. Verð á flutningum mun hækka, verð á flugfargjöldum mun hækka og verð á bensíni mun hækka. Allar þessar hækkanir hríslast síðan út í vísitölu neysluverðs með skelfilegum afleiðingum og miklu meiri afleiðingum fyrir okkur Íslendinga heldur en allar aðrar þjóðir,“ segir Vilhjálmur. „Þetta er einfaldlega vegna þess að við erum eina þjóðin sem er með sínar skuldir beintengdar við vísitölu neysluverðs. Núna nema verðtryggðar skuldir íslenskra heimila um 2.000 milljörðum króna sem þýðir, að ef verðbólguskotið verður umtalsvert getur það hækkað höfuðstól verðtryggðra skulda að minnsta kosti um tugi milljarða. Við erum nú þegar búin að horfa upp á það á síðustu þremur mánuðum að verðtryggðar skuldir heimilanna hafa hækkað um 50 milljarða. Þetta lýsir mjög vel hversu galið þetta kerfi er, að það skuli vera látið viðgangast af hálfu stjórnvalda á hverjum tíma að vera með þetta kerfi. Einhverjir brjálæðingar úti í heimi taka ákvörðun um stríðsrekstur, sem síðan hefur þau áhrif að verð á þessari nauðsynjavöru fyrir fólk og fyrirtæki rýkur hér upp úr öllu valdi og smitast af fullum þunga inn í verðtryggðar skuldir íslenskra heimila. Furðu sætir að menn skuli ekki sjá hversu galið þetta er, einfaldlega vegna þess að íslenskur almenningur hefur enga stjórn á því hvað er að gerast erlendis,“ segir hann. Kjarasamningar til endurskoðunar Spurður hvað rétt væri til bragðs að taka segir Vilhjálmur: „Mér heyrðist á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra að það kæmi kannski eitthvað eftir páska, en hún tók fram að það væri ekkert sem stjórnvöld gætu gert, eftir því sem mér skildist á henni. Ég sé á verðinu á bensíni að þegar lækkunin varð um áramót fór verðið hér á Akranesi niður í 211 krónur lítrinn, en er nú að verða komið upp í 218 krónur. Ég velti fyrir mér hvort bensínverðið verði orðið svipað og það var fyrir áramót, innan einhverra missera,“ segir hann. Vilhjálmur segir að kjarasamningar komi til endurskoðunar í september, en þá má 12 mánaða verðbólgan í ágúst ekki vera meiri en 4,7% og sex mánaða verðbólgan ekki meiri en 4,4%. „Eins og málin eru að þróast nú get ég ekki séð annað en að líkurnar aukist dag frá degi á að forsendurnar muni ekki halda. Forsendur kjarasamninganna riða til falls. Þegar aðilar taka ekki þátt í því að vinna bug á verðbólgu þá aukast líkurnar alltaf meira og meira á því að forsendur samninganna haldi ekki. Þegar vörur, þjónusta og skattar hækka meira en verðbólgumarkmið Seðlabankans kveður á um þá er það ávísun á verðbólgu,“ segir Vilhjálmur. Stjórnvöld eiga janúarhækkunina skuldlausa Hann bendir á að stjórnvöld eigi janúarhækkun verðbólgunnar skuldlausa, Orkuveitan og Icelandair hafi átt hana í desember en hækkunin í febrúar hafi verið á breiðum grunni. „Ég lít svo á að þegar hækkunin er á breiðum grunni hafi þeir aðilar, sem horfðu á hvernig stjórnvöld og opinber fyrirtæki höguðu sér, hugsað með sér: af hverju ekki við? Þannig virkar þetta. Þegar enginn tekur þátt þá gerist þetta með þessum hætti. Og svo erum við núna að horfa á ytri aðstæður sem geta haft mikil áhrif á verðbólguna, sem við getum engan veginn ráðið við. Þess vegna er sorglegt til þess að vita að menn hafi ekki axlað sína ábyrgð, þegar kemur að þeim atriðum sem við getum haft áhrif á,“ segir Vilhjálmur. Verð fylgir heimsmarkaði „Við erum ekki ónæm fyrir þessu frekar en aðrir,“ segir Magnús Hafliðason framkvæmdastjóri N1 og nefnir að fyrirtækið láti útsöluverð á eldsneyti fylgja breytingum á heimsmarkaðsverði. „Við eigum ekki annarra kosta völ. Við hækkuðum lítillega á þriðjudag og munum láta verðið fylgja, bæði upp og niður, eftir því sem þessu vindur fram,“ segir hann, enda hagi N1 verðlagningu sinni þannig að láta verð innanlands fylgja verði á heimsmarkaði. Stefnir í hækkanir að óbreyttu „Ágætis dæmi um það var sl. vor þegar verð og gengi krónunnar unnu nokkuð vel saman og innkaupsverð olíu lækkaði, þá lækkaði verðið hjá okkur jafnt og þétt. Það hefur verið okkar nálgun á mínum tíma hjá N1 að láta heimsmarkaðsverðið birtast jafnt og þétt í útsöluverði, bæði til hækkunar og lækkunar, þannig að viðskiptavinurinn finni beina tengingu þar á milli. Ef fólk vill að verð lækki í takti við verð á heimsmarkaði, þá verður það líka að hækka samkvæmt því. Það er ekki hægt að hafa bara annað hvort,“ segir Magnús. Spurður hvernig honum sýnist framhaldið ætla að verða, segir Magnús að að óbreyttu stefni í hækkanir. Málin breytist hins vegar hratt og hækkanir hafi verið brattar síðustu daga og ekkert lát virtist vera á olíuverðshækkunum. Hins vegar vonuðust menn til þess að hækkanirnar gengju til baka sem allra fyrst. Hagfræðingar sem Morgunblaðið hefur rætt við taka undir þau sjónarmið að hækkandi eldsneytisverð hafi áhrif á verðlag og setji þrýsting á verðbólguna til hækkunar. Á þessu stigi sé þó óljóst hve olíuverðshækkunin verði mikil sem og hve lengi hún muni vara. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hækkanir muni hafa veruleg áhrif Grásleppufrumvarpið samþykkt Vekur athygli á hegðun Carricks eftir leik Fær lítinn skilning eftir barneignir Tíu góðar hugmyndir sem gera golftímabilið enn betra Umræðan Lífeyrir fylgi launum Réttlæti fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Önnur olíukreppa á leiðinni til Evrópu Forsendurnar riða til falls Greinilega „skiptimynt“ fyrir Evrópuumræðu Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Forsendurnar riða til falls Andlát: Haukur Guðmundsson Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Hækkanir muni hafa veruleg áhrif Grásleppufrumvarpið samþykkt Vekur athygli á hegðun Carricks eftir leik Fær lítinn skilning eftir barneignir Tíu góðar hugmyndir sem gera golftímabilið enn betra Umræðan Lífeyrir fylgi launum Réttlæti fyrir alla Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forsendurnar riða til falls Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Loftnetin nú endanlega á útleið Bandarískur kafbátur sökkti skipinu Mest lesið Í gær Í vikunni Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Forsendurnar riða til falls Andlát: Haukur Guðmundsson Niðurstöður birtar en hvað þýða þær? Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Loftnetin nú endanlega á útleið Leggja til að borgin eigi byggingafélag Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“