Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Stýrivextir eru ekki að fara að stöðva átökin í Mið-Austurlöndum“

Read Full Article →

Formaður VR segir stjórnvöld þurfa að íhuga alvarlega að veita tímabundnar skattaundanþágur á eldsneyti til að draga úr verðbólguáhrifum. Forsendur kjarasamninga bresti líklega í haust og því sé mikilvægt að bregðast við til að milda áhrif verðhækkana á almenning. „Við sjáum að ríkisstjórnir víða um heim eru að skoða aðgerðir og grípa til aðgerða vegna þessa. Ég held að það sé full ástæða til að gera slíkt hið sama hér á landi,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR. Orkutengdir skattar verða lækkaðir verulega á Spáni til að stemma stigu við áhrifum stríðsins í Mið-Austurlöndum. Fram hefur komið hjá Seðlabanka Íslands og fleirum að snarhækkað eldsneytisverð vegna átaka í Mið-Austurlöndum komi til með að hafa áhrif á verðbólguna hér á landi. „Andvaraleysi gagnvart þessari stöðu“ Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ekki til skoðunar að lækka gjöld á eldsneyti til að draga úr verðbólgu. „Ég tel að almennt ríki talsvert andvaraleysi gagnvart þessari stöðu sem er að teiknast upp. Annars vegar í efnahagsmálunum hérna innanlands, sem er algjörlega heimatilbúinn vandi. Hins vegar með þessari miklu viðbót sem þessi orkukreppa á heimsvísu er líkleg til að verða,“ segir Halla. „Við vitum að forsendur kjarasamninga eru líklegar til að bresta í haust og þessir þættir skipta bara gríðarlega miklu máli þegar við í VR skoðum hvernig við metum stöðuna.“ Áhrif hækkana verði mun víðtækari en svo að eldsneytisverð hækki og bitni helst á venjulegu fólki. „Þetta hefur gríðarleg áhrif á matvælaverð, flutningakostnað, flug og svo mætti lengi telja áfram. Það aftur hefur bein áhrif á allt saman, á verðbólguna sem skilar sér síðan beint inn í húsnæðislán fólks í landinu.“ „Stýrirvextir eru ekki að fara að stöðva átökin“ Halla segir að olíufélögin þurfi að „taka hluta af skellinum“ en stjórnvöld þurfi að skoða hvernig draga megi úr neikvæðum áhrifum sviptinga á alþjóðavettvangi hér á landi. Hingað til hafi eina opinbera viðbragðið verið stýrivaxtahækkanir Seðlabankans. Skoða þurfi möguleika á að veita tímabundnar skattaundanþágur. „Það er algjörlega augljóst að stýrivextir eru ekki að fara að stöðva átökin í Mið-Austurlöndum og þeir eru heldur ekki að fara að slá niður heimsmarkaðsverð á olíu. Þess vegna gæti þurft að taka aðgerðir svolítið aftur á teikniborðið vegna þess að það er alveg óhæft að húsnæðislántakendur, barnafólk og leigjendur í landinu séu að fara að taka meira högg en þau hafa verið að gera núna í heil þrjú ár.“

Share this article