Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ekki til skoðunar að lækka skatta á eldsneyti

Read Full Article →

Daði Már Kristófersso fjármálaráðherra segir ekki til skoðunar að lækka gjöld á eldsneyti til að draga úr verðbólgu. Orkutengdir skattar verða lækkaðir verulega á Spáni til að stemma stigu við áhrifum stríðsins í Mið-Austurlöndum. Fram hefur komið hjá Seðlabanka Íslands og fleirum að snarhækkað eldsneytisverð vegna átakanna muni hafa áhrif á verðbólguna hér á landi. Fjármálaráðherra segir lækkun gjalda til að hamla gegn þessu eru ekki til skoðuna hjá stjórnvöldum.. „Nei, við höfum ekki verið að skoða það. Við erum auðvitað í samtal um aðgerðir með aðilum vinnumarkaðarins en þetta hefur ekki verið uppi á borðinu eins og er“, sagði Daði Már Kristófersson að loknum ríkisstjórnarfundi fyrir hádegið.

Share this article