Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

ESB ávítar Spán fyrir lækkun skatta á elds­neyti

Read Full Article →

Fram­kvæmda­stjórn Evrópu­sam­bandsins hefur varað spænsk stjórn­völd við því að lækkun virðis­auka­skatts á elds­neyti fari gegn reglum sam­bandsins. Þetta kemur fram í frétt El País, sem segir fram­kvæmda­stjórnina hafa sent spænskum stjórn­völdum bréf í lok mars þar sem bent er á að virðis­auka­skatt­stil­skipun ESB heimili ekki lægra skatt­hlut­fall á elds­neyti. ARA greinir frá sama máli og segir Pólland, sem hafi farið svipaða leið, einnig hafa fengið sam­bæri­legt erindi. Lækkun virðis­auka­skatts á elds­neyti niður í 10 pró­sent er ein af megin­að­gerðum spænskra stjórn­valda í nýjum að­gerða­pakka sem samþykktur var 20. mars til að milda áhrif stríðsins við Íran á heimili og fyrir­tæki. Sam­hliða þessu lækkuðu stjórn­völd einnig sér­stakt elds­neytis­gjald niður í það lág­mark sem reglur heimila. Spænska fjár­málaráðu­neytið hefur varið ráðstöfunina með þeim rökum að hér sé um tíma­bundna og hag­sveiflu­tengda að­gerð að ræða, en ekki varan­lega breytingu á skatt­kerfinu. Þrátt fyrir aðvörunina frá Brussel stendur ekki til að draga hana til baka að svo stöddu. Að­gerðin á að minnsta kosti að gilda til 30. júní og stjórn­völd hyggjast þá meta hvort ástæða sé til að fram­lengja hana í ljósi efna­hags­áhrifa átakanna. Fram­kvæmda­stjórnin telur hins vegar að Spánn hafi valið úrræði sem fellur utan þess svigrúms sem reglur sam­bandsins veita. Sam­kvæmt frétt El País bendir Brussel þess í stað á að mögu­legt sé að lækka sértæk elds­neytis­gjöld innan til­tekinna marka, en ekki virðis­auka­skatt á elds­neyti. Spænsk stjórn­völd hafi þegar nýtt sér þann mögu­leika í sama að­gerða­pakka. Málið dregur fram þá tog­streitu sem getur skapast þegar aðildarríki Evrópu­sam­bandsins reyna að bregðast hratt við orku­skelli og verðhækkunum með tíma­bundnum skatta­að­gerðum en rekast á mörk þess svigrúms sem sam­eigin­legt reglu­verk sam­bandsins heimilar.

Share this article