Innlent | mbl | 12.4.2026 | 6:55 Væri ekki leyfilegt innan ESB Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir ekkert út á það að setja að ríkisstjórnin ætli að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti. „Ef við einbeitum okkur að aðgerðinni þá er svo sem ekkert út á það að setja að skattar séu lækkaðir, þótt það sé tímabundið. Hins vegar er þetta alveg ótrúlega rýrt því vikum saman höfðu þau boðað aðgerðir sem kynntar yrðu eftir páska til að taka á ástandinu í efnahagsmálum. Svo síðast í gær var nú aldeilis kynt undir þessu með tali um tíu ára áætlun i vaxtamálum sem er kostuleg hugmynd,“ segir Sigmundur. Frétt af mbl.is Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu „Svo kemur þetta og þetta eru eingöngu tímabundin viðbrögð við ástandinu við Persaflóa, það var ekkert byrjað þegar að þau byrjuðu að boða að þau myndu boða einhverjar aðgerðir beint eftir páska. Nú láta þau fylgja sögunni að þetta séu bráðabirgðaaðgerðir en svo standi til að nota tímann til að búa til langtímaaðgerðir, hversu oft á að nota þetta sem frestunarráð?“ Ekki til þess fallið að breyta heildarvandanum Sigmundur segir þetta búið að ganga svona í meira en ár. Þegar að verstu spár rætast segi ríkisstjórnin að nú þurfi kannski að bregðast við og boða aðgerðir sem aldrei verði neitt úr. Frétt af mbl.is Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ „Þótt ég sé alls ekkert að setja út á það að skattur á eldsneyti sé lækkaður, þá eru þetta ekkert aðgerðir í samræmi við tilefnið og eru að því er virðist ætlaðar til þess að taka á því verðbólguskoti sem er að mestu leyti ókomið vegna hækkandi eldsneytisverðs, en er engu til þess fallið að bregðast við heildarvandanum.“ „Held það hafi ekki þurft að halda blaðamannafund um þetta“ Spurður hvort hann telji þessar aðgerðir ekki duga til að komast fyrir 4,7% ákvæðið í kjarasamningunum segist hann ekki eiga von á því. Frétt af mbl.is „Var kannski ekki efst á óskalistanum hjá okkur“ „Við erum enn að sjá eins og nýjustu mælingar sýndu verðhækkanirnar hríslast um allt hagkerfið, allt frá því að ríkisstjórnin byrjaði þetta, gaf tóninn með fjárlögunum síðast og þetta er fyrir vikið afskaplega lítið miðað við tilefnið. Ég held það hafi ekki þurft að halda blaðamannafund um þetta.“ Væri ekki leyfilegt innan ESB Sigmundur segir dálítið skondið að aðgerðirnar gildi fram að þeim degi sem ætlunin er að hefja aðlögun að Evrópusambandinu. Frétt af mbl.is Loks viðurkennir forsætisráðherra vandann „Enda væri þetta ekki leyft samkvæmt reglum ESB, að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti þetta mikið, bara eins og Spánverjar fengu að kynnast um daginn. Evrópusambandið skiptir sér náttúrulega af öllu hjá aðildarríkjunum og þar með skattlagningu, sérstaklega á eldsneyti út af öllu þessu græna bixi þeirra.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Væri ekki leyfilegt innan ESB „Hún var með allt á hreinu frá fyrsta degi“ Picasso-verk fyrir 14 þúsund krónur Sara Jasmín stofnar fyrirtæki Forskot McIlroy horfið á Masters Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Samkomulagi náð í Sundahöfn og verkfalli frestað Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Styrkir samtökin um 25 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Ekki útlit fyrir „viðvörunarveður“ í næstu viku Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Sjö á bráðamóttöku eftir árekstur Bílstjórar BSO ganga til liðs við Hreyfil Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Nýjast á mbl.is » Væri ekki leyfilegt innan ESB „Hún var með allt á hreinu frá fyrsta degi“ Picasso-verk fyrir 14 þúsund krónur Sara Jasmín stofnar fyrirtæki Forskot McIlroy horfið á Masters Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Styrkir samtökin um 25 milljónir Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Ekki mælt með að barnafjölskyldur flytji í bæinn Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Mest lesið Í gær Í vikunni Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Ekki útlit fyrir „viðvörunarveður“ í næstu viku Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Sjö á bráðamóttöku eftir árekstur Bílstjórar BSO ganga til liðs við Hreyfil Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu