Innlent | mbl | 10.3.2026 | 15:05 Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra á Alþingi í gær. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Beint: Umræður um ESB-tillöguna halda áfram » Fleiri tengdar fréttir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram hafi í raun verið kynnt, þótt hún hafi ekki verið sérstaklega boðuð í þingmálaskrá. Hún vísar gagnrýni á að um brot á þingsköpum hafi verið að ræða og að málið hafi átt að fara í samráð skv. ríkisstjórnarsamþykkt á bug. Utanríkisráðherra hafi skýrt frá því að þingsályktunin myndi koma fram á vorþingi þó að nákvæm dagsetning hafi ekki legið fyrir. Frétt af mbl.is Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Öryggisventill gegn afdrifaríkum einhliða ákvörðunum „Ég ætla nú kannski ekki að fara út í smáatriði í þingsköpum en ég veit að 24. grein snýr auðvitað fyrst og fremst að því að vera ákveðinn öryggisventill gagnvart því að ríkisstjórnin geti einhliða tekið stórkostlega afdrifaríka ákvörðun. Í þessu samhengi snýr þetta að framlagningu á þingsályktun sem er að fara til umræðu í þinginu og til meðhöndlunar hjá utanríkismálanefnd og síðar í þjóðaratkvæðagreiðslu til þess eins að opna á aðildarviðræður.“ „Hitt er síðan annað mál að auðvitað vill maður alltaf reyna að afgreiða mál í sem mestri sátt en ég held að við verðum að horfast í augu við að þetta mál er þess eðlis að það verða alltaf einhver átök í kringum það og við sýnum því í raun bara skilning.“ Hvergi skorast undan Utanríkisráðherra mælti fyrir málinu í gær. Þú tókst ekki þátt í umræðunni og það gerðu aðrir ráðherrar ekki heldur. Flokkur fólksins sást ekki og fáir stjórnarliðar fóru í ræðustólinn. Að lokum varð Þorgerður ein í salnum. Er það til marks um eitthvað? Stendur hún ein í þessu máli? „Ég tók þátt í og leiddi blaðamannafund hér á föstudaginn sem mér fannst nú bara tiltölulega umfangsmikill. Ég sagði bæði mína skoðun, hvernig ég mun greiða sjálf atkvæði í þessu máli og talaði fyrir ákveðnum sannfæringum varðandi tímapunktinn. Ég var á þinginu í gær í óundirbúnum fyrirspurnum þar sem ég fékk allar fyrirspurnir. Ég svaraði þeim öllum. Ég hef farið í viðtöl um þetta mál. Ég hef hvergi skorast undan að tjá mig um það,“ segir Kristrún. Segist hún þó meðvituð um að málið sé komið til þingsins. Hún segist oftast andlit flestra mála og að það sé í góðu lagi hennar vegna en að henni finnist líka allt í lagi að gefa þinginu smá svigrúm til að ræða málið. Frétt af mbl.is Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið „Það er utanríkisráðherra sem mælir fyrir þessu máli. Ég hef víða, samanber þetta viðtal, verið að tjá mig um þetta mál. Ég veit að það er heill hellingur af þingmönnum Samfylkingarinnar sem hefur áhuga á að fara upp í pontu en það er líka mikill áhugi hjá minnihlutanum og ég veit ekki betur en að Flokkur fólksins muni taka þátt að einhverju marki. Þau eru auðvitað líka bara með færri þingmenn.“ Kristrún segir áhuga fólks á málinu misjafnan. Margir hafi lengi velt því fyrir sér, aðrir ekki, en full samstaða sé í ríkisstjórn um að ráðast í þjóðaratkvæðagreiðsluna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra á Alþingi í gær. mbl.is/Karítas Hafði ráðstafað sér annars staðar Formenn flestra flokka voru mættir í Silfrið í gær. Fjarvera þín vakti athygli í raun og veru. Hvers vegna mættir þú ekki? „Það voru frekar einfaldar ástæður fyrir því. Það var boðað til þessa þáttar og farið fram og til baka með það í nokkra daga og svo var bara skammur fyrirvari á því og ég var búin að ráðstafa mér annars staðar.“ Kristrún segist vera með mjög mikið af hæfu fólki í umræðunni. Sjálf hafi hún verið leiðandi í henni, sbr. blaðamannafundinn og flestar óundirbúnar fyrirspurnir síðustu vikur sem snúa að málinu. „Ég hef ekki komið mér undan að svara en það eru fleiri í Samfylkingunni og í stjórnarmeirihlutanum sem geta tjáð sig um þessi mál og mér finnst það bara gott og hollt að það séu fleiri sem komi að því.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Svarar ekki beint um undanþágur en segir stöðu Íslands sterka Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Stál í stál um afstöðuna til aðildarviðræðna við ESB Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Hart sótt að Kristrúnu Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Beint: Umræður um ESB-tillöguna halda áfram » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Breyting á landsliðshópnum Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp Næstelsta fjölskyldubakarí Þýskalands lokar eftir 435 ára rekstur Daníel Guðjohnsen í miklu stuði Vill Kúbu með góðu eða illu Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sést strax í næstu verðbólgumælingum Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk „Helmingslíkur á gosi“ Kristrún ætlar ekki að ræða um þjóðaratkvæðið Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Farsælast að Hildigunnur hefði setið áfram Sjónvarpað frá útför Davíðs Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Gátu ekki rökstutt þörf á gæsluvarðhaldi Fékk nótina í skrúfuna Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Breyting á landsliðshópnum Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp Næstelsta fjölskyldubakarí Þýskalands lokar eftir 435 ára rekstur Daníel Guðjohnsen í miklu stuði Vill Kúbu með góðu eða illu Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Segir ríkisstjórnina ekki hafa brotið þingsköp „Bandaríkin taka við þeim ef þið gerið það ekki“ Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Ósáttur við ummæli ráðherra Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Drumbarnir frá NATO Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Farsælast að Hildigunnur hefði setið áfram Sjónvarpað frá útför Davíðs Þrír í haldi vegna gruns um nauðgun á Akureyri Gátu ekki rökstutt þörf á gæsluvarðhaldi Fékk nótina í skrúfuna Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar