Samlagsfélag Torfa Fjalars Jónassonar hjartalæknis og Ölmu Möller, þingmanns Samfylkingarinnar og núverandi heilbrigðisráðherra, fékk greiddar tæplega 30 milljónir króna í verktakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2023 til 2025. Þetta kemur fram í svörum frá heilbrigðisráðuneytinu við spurningum fréttastofu. Svörin bárust um miðjan nóvember síðastliðinn. Alma Möller var 30 prósent eigandi í samlagsfélaginu samkvæmt stofnsamningi þess frá árinu 2012 en er það ekki lengur. Þann 2. október síðastliðinn gekk Alma úr eigendahópnum og nafni samlagsfélagsins var breytt úr því að vísa í nöfn þeirra beggja, Jónasson og Möller slf. og yfir í Mánaberg slf. Þann 6. október sagði Alma frá því á Alþingi að hún myndi ekki koma að því að fjalla um þessa ferliverktakasamninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna þessara hagsmunatengsla. Þá var hins vegar hafin umræða um þessa samninga og telur Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, að hún hefði átt að segja sig frá málinu fyrr í ljósi hagsmunatengsla sinna við samlagsfélagið. Miklar deilur hafa geisað við Sjúkrahúsið á Akureyri síðastliðna mánuði út af þessum verktakasamningum. Framkvæmdastjórn sjúkrahússins sagði upp þessum samningum í september síðastliðnum. Í kjölfarið sögðu þrír læknar upp störfum á sjúkrahúsinu vegna þessa. Vegna þessara deilna og gagnrýni á uppsögn samninganna var ákveðið að fresta því að segja þeim upp þar til í september á þessu ári. Þessi verktakasamningar eru því enn þá í gildi á sjúkrahúsinu. Fjallað er um þetta samlagsfélag, þessa verktakasamninga, starfslok forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri og tengd mál í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Miklar deilur hafa geisað á Sjúkrahúsinu á Akureyri út af verktakasamningum við lækna og uppsögn á þeim. Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur dregist inn í umræðuna persónulega vegna þess að eiginmaður hennar gerði slíkan samning við sjúkrahúsið. Engin aðkoma í 15 ár segir Alma Hvernig svarar Alma Möller spurningum um verktakagreiðslur til samlagsfélagsins sem hún átti ásamt eiginmanni sínum? Fréttastofa RÚV spurði hana að þessu. Í svarinu sem barst til fréttastofu frá ráðuneytinu segir hún að ráðherra hafi ekkert komið að þessu félagi í fimmtán ár og að Torfi eiginmaður hennar hafi unnið í góðri trú. Orðrétt segir um þetta í svari ráðuneytisins sem sent var til fréttastofu: „Eiginmaður ráðherra er í hlutastarfi á SAK og hlutastarfi sem sjálfstætt starfandi sérfræðilæknir. Sem sjálfstætt starfandi starfar hann í gegnum félagið Jónasson og Möller sem stofnað var árið 2003 og er í eigu fjölskyldunnar en dóttirin er líka sjálfstætt starfandi. Ráðherra sjálf hefur ekkert lagt til félagsins í um 15 ár. Þannig er um að ræða starfskjör eiginmanns sem hefur unnið í góðri trú í takti við samning sem SAK bauð en var upplýstur fyrst nýlega um að um gerviverktöku kynni að vera að ræða.“ Forstjórinn hætti strax Inn í umræðuna um verktakasamningana og deilur vegna þeirra spilar að um miðjan febrúar síðastliðinn var sagt frá því að forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, Hildigunnur Svavarsdóttir, hefði ákveðið að láta tafarlaust af störfum eftir að heilbrigðisráðherra ákvað að auglýsa starf hennar laust til umsóknar. Hildigunnur lýsti því yfir í bréfi til starfsfólks að hún teldi ekki að hún hefði traust heilbrigðisráðherra til að sitja í forstjórastólnum áfram. Heilbrigðisráðuneytið birti auglýsingu um það þann 27. febrúar síðastliðinn að starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri væri laust til umsóknar. Þetta helst náði tali af Hildigunni Svavarsdóttur og óskaði eftir viðtali við hana um starfslok hennar og hvort umræðan um verktakasamningana hefði spilað inn í starfslok hennar nú í febrúar. Hildigunnur vildi ekki veita Þetta helst viðtal um málið. Spyr spurninga um gagnrýni eiginmanns ráðherra Ingibjörg Isaksen hefur sagt opinberlega að eiginmaður heilbrigðisráðherra, Torfi Fjalar Jónsson, hafi lýst yfir vantrausti á framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri út af uppsögninni á ferliverksamningunum og að henni þyki skrítið að ráðuneytið ákveði svo að endurnýja ekki samning við forstjórann. Er Ingibjörg að segja að það séu tengsl á milli ákvörðunar Hildigunnar Svavarsdóttur að segja upp verktakasamningunum og starfsloka hennar? Ingibjörg segist ekki vilja fullyrða það en að málið sé óþægilegt fyrir ráðherra. Hún segir um þetta: „Nú ætla ég ekki að dæma um það. En mér finnst samt einkennilegt að eiginmaður ráðherra skuli leggja fram vantrauststillögu á framkvæmdastjórnina, gef ég mér. En hann dregur hana hins vegar til baka þegar hann segir upp starfi sínu vegna óánægju út af þessu ferli öllu saman. Ég ætla ekki að dæma um eitt né neitt. Mér finnst samt sem áður, þetta er viðkvæmt; þetta er eðlilega flókið fyrir ráðherra, þessi staða. Hún þarf eðlilega að geta tekið á ýmsum málum sem heilbrigðisráðherra en getur það ekki vegna tengsla sinna við einn læknanna á Sjúkrahúsinu á Akureyri.“ Fagráð ályktar um starfslokin Rétt fyrir hádegi í dag sendi Sjúkrahúsið á Akureyri frá sér tilkynningu um að fagráð spítalans hefði ályktað um starfslok Hildigunnar. Í ályktuninni segir fagráðið að það harmi skyndileg starfslok Hildigunnar og að betra hefði verið ef hún hefði haldið áfram að stýra sjúkrahúsinu. Orðrétt segir í ályktuninni: „Fagráð harmar hið skyndilega brotthvarf Hildigunnar úr starfi forstjóra og álítur að farsælast hefði verið að hún hefði setið áfram.“