- What: A healthcare-related financial disclosure
- Impact: Government official's financial details
Samlagsfélag í eigu Torfa Fjalars Jónassonar, hjartalæknis og eiginmanns Ölmu Möller, fyrrverandi landlæknis og núverandi heilbrigðisráðherra, og hennar fékk greiddar rúmlega 28 milljónir króna í verktakagreiðslur fyrir hjartaómskoðanir á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2021 til 2025. Þetta kemur fram í svörum frá aðstoðarmanni Ölmu Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn fréttastofu um verktakagreiðslur til félagsins vegna hjartaómskoðana. Alma var landlæknir á árunum 2018 til 2024 en þá settist hún á þing og varð heilbrigðisráðherra. Þessar greiðslur bætast við tæplega 30 milljóna króna verktakagreiðslur sem samlagsfélagið fékk fyrir svokölluð ferliverk á árunum 2023 til 2025. Fréttastofa sagði frá þessum greiðslum í mars. Torfi Fjalar var og er starfsmaður Sjúkrahússins á Akureyri og bættust þessar verktakagreiðslur við föst laun hans á þessum tíma. Samlagsfélagið hét Jónasson og Möller slf. en það skipti um nafn í október í fyrra og heitir nú Mánaberg slf. Þetta gerðist eftir að umræður komu upp í samfélaginu um greiðslur til samlagsfélagsins fyrir ferliverk. Alma er ekki lengur eigandi að samlagsfélaginu. Í heildina fékk þetta samlagsfélag þeirra hjóna því tæplega 60 milljóna króna verktakagreiðslur á þessum tíma. Í svörum Ölmu til fréttastofu um verktakagreiðslurnar í nóvember kom fram að eiginmaður hennar hefði unnið í góðri trú á grundvelli verktakasamnings sem sjúkrahúsið bauð honum, líkt og nokkrum öðrum læknum á sjúkrahúsinu. „Eiginmaður ráðherra er í hlutastarfi á SAk og hlutastarfi sem sjálfstætt starfandi sérfræðilæknir. Sem sjálfstætt starfandi starfar hann í gegnum félagið Jónasson og Möller sem stofnað var árið 2003 og er í eigu fjölskyldunnar en dóttirin er líka sjálfstætt starfandi. Ráðherra sjálfur hefur ekkert lagt til félagsins í um 15 ár. Þannig er um að ræða starfskjör eiginmanns sem hefur unnið í góðri trú í takti við samning sem SAk bauð en var upplýstur fyrst nýlega um að um gerviverktöku kynni að vera að ræða.“ Miklar deilur hafa geisað við Sjúkrahúsið á Akureyri síðastliðna mánuði út af þessum verktakasamningum og hafa komið upp snarpar umræður á Alþingi út af tengslum Ölmu Möller við málið. Sá þingmaður sem mest hefur rætt um tengsl Ölmu við þetta mál er Ingibjörg Isaksen þingkona Framsóknarflokksins. Framkvæmdastjórn sjúkrahússins sagði upp þessum samningum í september síðastliðnum vegna þess að þeir voru taldir vera ólöglegir og dæmi um gerviverktöku. Í kjölfarið sögðu þrír læknar upp störfum á sjúkrahúsinu vegna þessa. Út af þessum deilum og gagnrýni á uppsögn samninganna var ákveðið að fresta því að segja þeim upp þar til í september á þessu ári. Þessir verktakasamningar eru því enn þá í gildi á sjúkrahúsinu. Í grunninn snúast deilurnar um það hvort það sé eðlilegt að fastráðnir læknar á Sjúkrahúsinu á Akureyri, sem og öðrum sjúkrahúsum, séu bæði launþegar og verktakar á sama tíma við sömu heilbrigðisstofnun. Óljóst er hins vegar hvað verður þegar samningarnir hætta að gilda síðar á árinu og læknarnir sem hafa fengið greitt fyrir þessi ferliverk munu ekki lengur fá greitt sérstaklega fyrir þessi læknisverk. Tíma tók að nálgast upplýsingar um ómskoðanirnar Fréttastofa óskaði fyrst eftir upplýsingum um greiðslur til lækna vegna ferliverksamninganna í september í fyrra. Erfiðlega gekk að fá þessar upplýsingar fyrst um sinn en svo bárust upplýsingar um greiðslur til samlagsfélags Torfa Fjalars Jónarssonar og Ölmu Möller fyrir ferliverkin. Þessar upplýsingar bárust frá Ölmu Möller sjálfri á endanum en ekki frá sjúkrahúsinu. Í svarinu frá aðstoðarkonu Ölmu kom fram að samlagsfélagið hefði einnig fengið greiddar verktakagreiðslur fyrir hjartaómskoðanir. Orðrétt sagði í svarinu frá aðstoðarkonu Ölmu um þessar hjartaómskoðanir. „Að auki hefur eiginmaður ráðherra sinnt ómskoðunum á SAk. Þær falla ekki undir ferliverkasamninga samkvæmt skilgreiningu SAk en lúta sömu reglum er varða t.d. aðstöðugjald til SAk og tímaskilagjald. Endurgjald vegna vinnu við ómskoðanir er greitt beint af Sjúkratryggingum Íslands en SAk heldur utan um fjölda verka og sjúklinga. Óskað hefur verið eftir yfirliti yfir þau verk frá SAk og nánari útskýringum á þeim greinarmun sem gerður er.“ Upplýsingar frá Ölmu um þessar greiðslur fyrir hjartaómskoðanir á á árunum 2021 til 2025 bárust nú í vikunni. Áður höfðu einungis borist upplýsingar um þessar greiðslur fyrir eitt ár. Munurinn á Landspítalanum og Sjúkrahúsinu á Akureyri En um hvað snýst þetta mál í grunninn? Umræðan um ferliverksamningana á Akureyri og uppsögn þeirra hefur meðal annars undirstrikað muninn sem er á milli Landspítalans og Sjúkrahússins á Akureyri þegar kemur að verktakavinnu lækna sem starfa á spítalanum sem launþegar. Slík verktakavinna lækna var heimil á Sjúkrahúsinu á Akureyri en var það ekki á Landspítalanum þó svo að nú búið að girða fyrir frekari verktakasamninga um ferliverk. Í svörum frá Landspítalanum í kemur skýrt fram að slík verktakavinnu sé bönnuð. Fréttastofa spurði meðal annars: „ Má læknir sem er launþegi á LSH gera verktakasamning um ferliverk við LSH á sama tíma? Getur hann sem sagt bæði verið launþegi og verktaki, eða ferliverktaki? Svar Landspítalans við þessu var: „Nei, þetta er ekki heimilt.“ Fréttastofa spurði líka: „Má læknir sem er launþegi á LSH fá verktakagreiðslur frá LSH á sama tíma? Hér er spurt um annars konar verktakasamband en fyrir ferliverk. Getur hjartalæknir til dæmis verið í fullu starfi eða 80 prósenta starfi á LSH og líka unnið verk fyrir spítalann í verktöku?“ Svar Landspítalans var: „Nei, þetta er ekki heimilt lengur. Það tíðkaðist með mjög takmörkuðum hætti, t.d. í myndgreiningarþjónustu þar sem var mikill mönnunarvandi, en hefur nú verið aflagt. Við þetta má bæta að ráðist hefur verið í umfangsmikið verkefni hér á Landspítala til að henda reiður á öll aukastörf starfsmanna spítalans. Það er nú í höfn og unnið er að því að kynna fyrir öllum starfsmönnum skyldu þeirra til að tilkynna aukastörf og fá þannig heimild stofnunarinnar fyrir því að sinna því aukastarfi. Við afgreiðslu þeirra tilkynninga er lagt mat á hagsmunaárekstra áður en heimild er veitt.“ Í svörum frá settum forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri, Erlu Björnsdóttur, við spurningum fréttastofu um ferliverksamningana kemur fram að öfugt við Landspítalann hafi verið greitt fyrir ferliverk á spítalanum frá árinu 1992. Svörin frá Erlu bárust í mars. Fréttastofa spurði: „Af hverju og á hvaða forsendum er spítalanum heimilt að gera ferliverksamninga við lækna sem eru starfandi sem launþegar þar? “ Svar Erlu var: „Sjúkrahúsinu á Akureyri er ekki heimilt að gera nýja verktakasamninga um ferliverk, en ferliverkasamningar hafa verið í gildi á SAk svo gott sem frá setningu reglugerðar um ferliverk árið 1992. Nýir verktakasamningar um ferliverk hafa ekki verið gerðir á SAk frá árinu 2024.“ Fréttastofa spurði líka sérstaklega um greiðslur til fastráðinna starfsmanna fyrir verk sem unnin eru í verktöku. Fréttastofa spurði: „ Af hverju og á hvaða forsendum er sjúkrahúsinu heimilt að semja við lækna sem eru launþegar þar um að þeir vinni læknisverk í verktöku, til dæmis hjartaómskoðanir? Hér er verið að spyrja um önnur verk en ferliverk. Svar Erlu var á þá leið að slíkir samningar væru aðeins gerðir í undantekningartilfellum: „Verktakasamningar um læknisverk eiga aðeins við í undantekningartilvikum þegar verktakar sinna lítilli vinnu, tímabundið og stöku sinnum. Sjúkrahúsinu á Akureyri er í dag ekki heimilt að semja við lækna sem eru launþegar á sjúkrahúsinu um að taka að sér læknisverk í verktöku samhliða aðalstarfi sínu hjá stofnuninni. Hjartaómanir eru samningar sem falla undir verktöku. “ Erla vildi líka koma því á framfæri að þessir samningar hefðu verið gerðir í góðri trú. Í svari Erlu sagði: „Framkvæmdastjórn SAk vill koma því á framfæri að verktakasamningar við launþega SAk og samningar um ferliverk voru gerðir í góðri trú, bæði af hálfu SAk og þeirra sérfræðilækna sem samið var við. Aðilar gengu til samninga með það að leiðarljósi að tryggja öfluga heilbrigðisþjónustu og hafa ávallt lagt sig fram um að sinna störfum sínum af heilindum. Þá ber að taka sérstaklega fram að SAk hefur tryggt sérfræðilæknum sem sinna verktöku aðstöðu og fyrir það hafa þeir greitt aðstöðugjald, auk endurgjalds vegna tíma sem fer í ferliverkin/verktöku. Með þessum hætti hefur verið hægt að veita alla þjónustu á sama stað og nýta þá miklu samlegð sem er með rekstri sjúkrahússins og móttöku sérfræðinga. “ Fréttastofa fær ekki upplýsingar um allar vertakagreiðslurnar Líkt og kemur fram í svörum forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri hér að ofan þá voru verktakasamningarnir við lækna gerðir í góðri trú. Fréttastofa hefur reynt að fá yfirlit frá Sjúkrahúsinu á Akureyri yfir allar verktakagreiðslur til lækna á sjúkrahúsinu. Beiðni fréttastofu um þessar upplýsingar var hafnað í september síðastliðnum. Í svari þáverandi forstjóra sjúkrahússins, Hildigunnar Svavarsdóttur, kom fram að synjun á beiðni fréttastofu um þessar upplýsingar væri endanleg. Orðrétt sagði í synjun spítalans á beiðni fréttastofu: „Þann 23. september sl. voru verktakar upplýstir um fyrirspurn ykkar og þeim veittur frestur til 30. september til að koma athugasemdum á framfæri. Þær athugasemdir sem bárust innan þess tímafrests voru í formi spurninga sem við svöruðum. Í gær var síðan haft samband við þá alla og þeir upplýstir að til stæði að afhenda umrædd gögn, komu þá fram ný sjónarmið er varða 9. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012, þar sem þeirra sjónarhorn er að um sé að ræða gögn um einka- eða fjárhagsmálefni þeirra og fyrirtækja þeirra, sem sanngjarnt sé og eðlilegt að leynt fari. Eftir að hafa borið málið undir nokkra lögfræðinga, var niðurstaðan sú að það væri ekki yfir vafa hafið að umrædd gögn féllu undir ákvæði laganna líkt og greinir um í 5. mgr. upplýsingalaga. Líkt og áður segir hefur framkvæmdastjórn fallist á þann rökstuðning, enda þarf að fara fram hagsmunamat á þeim gögnum og því teljum við rétt að úrskurðarnefnd um upplýsingamál taki lokaákvörðun í málinu. “ Eins og staðan er núna hefur fréttastofa aðeins fengið upplýsingar um verktakagreiðslurnar, meðal annars vegna ferliverkanna, beint frá Ölmu Möller heilbrigðisráðherra. Upplýsingar um aðrar verktakagreiðslur frá Sjúkrahúsinu á Akureyri liggja hins vegar ekki fyrir þar sem sjúkrahúsið hefur ekki viljað veita þessar upplýsingar. Í heildina voru þrettán læknar sem fengu greiðslur frá Sjúkrahúsinu á Akureyri fyrir ferliverk.