Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Samlagsfélag eiginmanns Ölmu fékk aðrar verktakagreiðslur upp á milljónir

Read Full Article →

Samlagsfélag Torfa Fjalars Jónassonar hjartalæknis og Ölmu Möller, þáverandi landlæknis og núverandi heilbrigðisráðherra, fékk greiddar rúmlega 9 milljónir króna í vertakagreiðslur fyrir hjartaómskoðanir á Sjúkrahúsinu á Akureyri árið 2023. Þessar vertakagreiðslur bætast við greiðslur sem samlagsfélagið fékk fyrir svokölluð ferliverk þetta sama ár og fleiri. Þetta kemur fram í svörum frá heilbrigðisráðuneytinu við spurningum fréttastofu um greiðslur til samlagsfélagsins fyrir þessar hjartaómskoðanir. Rúmlega 9 milljónir er heildargreiðslan til félags Torfa og Ölmu fyrir árið 2023 en í þessari greiðslu eru aðstöðugjöld upp á rúmar þrjár milljónir sem félagið greiðir til Sjúkrahússins á Akureyri. Eftir standa því tæplega sex milljónir króna eftir greiðslu aðstöðugjaldanna. Í svari frá heilbrigðisráðuneytinu kemur fram að á þessu stigi liggi aðeins fyrir upplýsingar um greiðslur til samlagsfélagsins vegna þessara hjartaómskoðana fyrir árið 2023: „Meðfylgjandi er yfirlit yfir greiðslur vegna hjartaómskoðana á árinu 2023, upplýsingar um greiðslur vegna áranna 2024 og 2025 verða sendar um leið og þær berast frá SAK.” Djúpt á tölunum Tekið skal fram að í upphaflegum svörum heilbrigðisráðuneytisins til fréttastofu um greiðslur vegna ferliverkssamninganna til samlagsfélagsins var minnst á þessar greiðslur vegna þessara hjartaómskoðana. Í svarinu kom fram að verið væri að vinna að því að afla upplýsinga um þessar greiðslur. Í svarinu sagði: „Að auki hefur eiginmaður ráðherra sinnt ómskoðunum á SAk. Þær falla ekki undir ferliverkasamninga samkvæmt skilgreiningu SAk, en lúta sömu reglum er varða t.d. aðstöðugjald til SAk og tímaskilagjald. Endurgjald vegna vinnu við ómskoðanir er greitt beint af Sjúkratryggingum Íslands en SAK heldur utan um fjölda verka og sjúklinga. Óskað hefur verið eftir yfirliti yfir þau verk frá SAk og nánari útskýringum á þeim greinarmun sem gerður er.“ Alma spurð um hæfi til að ráða nýjan forstjóra Miklar umræður hafa verið um viðskipti samlagsfélags þeirra Torfa og Ölmu við Sjúkrahúsið á Akureyri síðastliðna mánuði. Síðast í gær var tekist á um þetta mál á Alþingi. Þá spurði þingkona Framsóknarflokksins, Ingibjörg Isaksen, heilbrigðisráðherra Ölmu Möller um hæfi hennar til að koma ráðningu nýs forstjóra sjúkrahússins í ljósi tengsla hennar við spítalann í gegnum eiginmann sinn. Ástæðan fyrir þessari umræðu er sú að í fyrrahaust var samningum Sjúkrahússins á Akureyri við þrettán lækna um svokölluð ferliverk sagt upp. Uppsögnin var byggð á því að um svokallaða gerviverktöku væri að ræða. Sumir af læknunum sem um ræðir, meðal annars Torfi Fjalar Jónasson, eru fastir starfsmenn sjúkrahússins og launþegar þar. Þeir vinna hins vegar líka verk sem verktakar. Eftir að uppsögn samninganna vakti hörð viðbrögð þessara lækna á sjúkrahúsinu var hætt við að segja þeim upp tímabundið. Samningunum verður í staðinn sagt upp frá 1. september næstkomandi. Fjallað var um þessar deilur í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í síðustu viku. Þáttinn má hlusta á hér: Samlagsfélag eiginmanns Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, hjartalæknisins Torfa Fjalars Jónassonar, hefur fengið sérstakar verktakagreiðslur fyrir hjartaómskoðanir á Sjúkrahúsinu á Akureyri um árabil. 47 milljóna greiðslur Alma Möller var 30 prósent eigandi í samlagsfélaginu samkvæmt stofnsamningi þess frá árinu 2012 en er það ekki lengur. Þann 2. október síðastliðinn gekk Alma úr eigendahópnum og nafni samlagsfélagsins var breytt úr því að vísa í nöfn þeirra beggja, Jónasson og Möller slf. og yfir í Mánaberg slf. Heildargreiðslurnar til samlagsfélagsins fyrir ferliverkin á þessu tímabili nema samtals 47 milljónum króna. En af þessari upphæð eru rúmlega 17 milljónir króna sem eru aðstöðugjöld sem greiðast til Sjúkrahússins á Akureyri fyrir notkun á aðstöðunni þar. Eftir standa rúmlega 30 milljóna króna tekjur félagsins af þessum ferliverkum. Þann 6. október sagði Alma frá því á Alþingi að hún myndi ekki koma að því að fjalla um þessa ferliverktakasamninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna þessara hagsmunatengsla. Þá var hins vegar hafin umræða um þessa samninga og hefur Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, sagt að hún telji að Alma hefði átt að segja sig frá málinu fyrr í ljósi hagsmunatengsla sinna við samlagsfélagið. Spyr spurninga um Ölmu og starfslok forstjórans Inn í umræðuna um verktakasamningana og deilur vegna þeirra spilar að um miðjan febrúar síðastliðinn var sagt frá því að forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, Hildigunnur Svavarsdóttir, hefði ákveðið að láta tafarlaust af störfum eftir að heilbrigðisráðherra ákvað að auglýsa starfið hennar laust til umsóknar. Ingibjörg Isaaksen hefur sagt opinberlega að eiginmaður heilbrigðisráðherra, Torfi Fjalar Jónsson, hafi lýst yfir vantrausti á framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri út af uppsögninni á ferliverksamningunum og að henni þyki skrítið að ráðuneytið ákveði svo að endurnýja ekki samning við forstjórann. Hildigunnur Svavarsdóttir hefur ekki viljað fréttastofu RÚV viðtal um starfslokin.

Share this article