Innlent | Morgunblaðið | 22.4.2026 | 7:00 Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Pálmi V. Jónsson og Sigurður Stefánsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Umbætur í heilbrigðisþjónustu við eldra fólk heima og eftir bráðaveikindi létta á heilbrigðiskerfi þjóðarinnar og geta dregið verulega úr álagi á sjúkrahúsþjónustu og þannig sparað verulega fjármuni. Skortur á hentugum og kostnaðarminni úrræðum fyrir eldra fólk heima leiðir til langrar dvalar á sjúkrahúsi, sem er langt umfram þann tíma sem þarf vegna bráðaveikinda. Sjúkrahús eru kostnaðarsöm og hönnuð með flóknari og dýrari heilbrigðisþjónustu í huga. Til að takast á við vanda heilbrigðiskerfisins þarf að byrja á réttum enda, sem er að stórefla þjónustu við eldra fólk sem býr heima. Heilbrigðiskerfið undir þrýstingi, þrátt fyrir mikla fjármuni Útgjöld ríkisins til heilbrigðismála eru nú þegar mjög há. Samkvæmt fjármálaáætlun nema þau um 433 milljörðum króna árið 2026, eða nærri þriðjungi allra ríkisútgjalda. Ísland ver um 9% af vergri landsframleiðslu til heilbrigðismála, sem er svipað og meðaltal OECD-ríkja, á meðan aðrar Norðurlandaþjóðir eru nær 10-11%. Þrátt fyrir þetta blasir við vaxandi skortur, lengri biðlistar og aukið álag. Vandinn snýst því ekki aðeins um meira fjármagn, heldur ekki síður hvernig því er varið. Hlutfall 65 ára og eldri er enn tiltölulega lágt á Íslandi, um 16%, samanborið við um 20% hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Þrátt fyrir það ber þessi hópur stóran hluta heilbrigðisútgjalda, enda eykst kostnaður hratt með aldri. Við rekum því þegar kerfi á svipuðum kostnaðargrunni og þjóðir með mun eldri íbúasamsetningu. Uppbygging utan Landspítala forsenda sjálfbærni heilbrigðiskerfisins Þróunin fram undan er krefjandi. Fólki yfir 75 ára aldri mun fjölga hratt, úr um 26 þúsund í um 45 þúsund til ársins 2040. Sá hópur ber um þriðjung heilbrigðiskostnaðar í sambærilegum löndum. Ljóst er að slík fjölgun mun hafa veruleg áhrif á álag og kostnað í heilbrigðiskerfinu hér á landi. Áætlað er að byggja þurfi nær 4.000 ný eða endurbætt hjúkrunarrými til ársins 2040. Án markvissrar uppbyggingar og réttrar þjónustu mun þessi þróun leiða til sívaxandi kostnaðar og aukins þrýstings á heilbrigðiskerfið. Rétt fjárfesting í innviðum á borð við heilbrigðisþjónustu er ekki kostnaður heldur sparnaður. Heilbrigðiskerfið leitar til Landspítalans þegar fylla þarf í eyður, segir í skýrslu McKinsey-ráðgjafarfyrirtækisins frá 2021 þar sem fjallað er um framtíðarhlutverk Landspítalans. Stærsta eyðan í heilbrigðiskerfinu er þjónustan við eldra fólk heima. Uppbygging samfélagsþjónustu utan Landspítala er lykilforsenda fyrir sjálfbæru heilbrigðiskerfi. Ódýrasti valkosturinn eftirsóttastur og bestur Ef ekki verður brugðist við með markvissri uppbyggingu heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk utan sjúkrahúss, er gert ráð fyrir í skýrslu McKinsey, að komur á göngudeildir Landspítalans aukist um nærri 23%, þörf fyrir rými aukist um 80%, þörf fyrir vinnuafl um 45% og kostnaður vaxi um 90%. Með öðrum orðum: ef ekki er brugðist við með uppbyggingu heilbrigðisþjónustu við eldra fólks utan Landspítala mun háskólasjúkrahúsið ekki rísa undir þeirri sérhæfðu þjónustu sem til er ætlast. Að óbreyttu verður sóun gríðarleg því kostnaðarsöm sérhæfð úrræði sjúkrahússins munu stíflast. Eitt rými á Landspítalanum kostar meira en 70 milljónir króna á ári í rekstri en rými á hjúkrunarheimili kostaði 23 milljónir árið 2025. Það að búa á eigin heimili og hafa greiðan aðgang að þeirri heilbrigðisþjónustu, sem þörf krefur á hverjum tíma, er kostnaðarminnsti valkosturinn og því bæði sá eftirsóttasti og besti. Þess vegna er mikilvægt fyrir samfélagið í heild, jafnt fjárhagslega sem félagslega, að styðja sjálfstæða búsetu ævina alla og efla heilbrigðisþjónustu í ýmsum myndum við eldra fólk heima. Gunnarshólmi styrkir Landspítalann Greinarhöfundar vinna að undirbúningi á metnaðarfullu verkefni sem tekst á við ofangreindar áskoranir. Áformað er að reisa nýtt hverfi í landi Kópavogs á Gunnarshólma við Hólmsá austan við Heiðmörk. Þar verða í boði 6 þúsund íbúðir fyrir fólk á þriðja æviskeiði með viðeigandi þjónustuinnviðum og áherslu á félagslega samveru og útivist. Þá verður samhliða ráðist í umfangsmikla uppbyggingu innviða í heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk á stórhöfuðborgarsvæðinu en þar verður m.a. í boði sérhæfð læknisþjónusta fyrir eldra fólk sem býr heima en einnig heilsusetur með 600 skammtímarými fyrir andlega og líkamlega virkni og endurhæfingu auk 600 sérhæfðra hjúkrunarrýma fyrir fólk í varanlegri dvöl. Uppbygging á Gunnarshólma er í fullu samræmi við niðurstöðu McKinsey-skýrslunnar um að lykilforsenda fyrir sjálfbæru heilbrigðiskerfi árið 2040 sé uppbygging heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk heima og þróun sjálfstæðs heilsuseturs utan Landspítala, innviðir sem eru takmarkaðir eða ekki til staðar í dag. Með því að færa þjónustuna nær fólki, efla forvarnir og styðja við sjálfstæða búsetu má bæði auka lífsgæði og nýta fjármuni betur. Samhliða mun álag á Landspítala minnka og sjúkrahúsið fá aukið svigrúm til að sinna hlutverki sínu sem háskólasjúkrahús. Pálmi V. Jónsson er lyf- og öldrunarlæknir og prófessor emeritus við Læknadeild HÍ og Sigurður Stefánsson er framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags ehf. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fyrstu spaðarnir komnir til landsins Skotið á skip í Homússundi Aðsend grein: Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Fékk nýlega að vita af 15 ára barnabarni Nói Síríus kynnir Sumarkroppið 2026: Bíó Kropp með piparbrjóstsykri Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi „Af hverju fólk festist í afbrotum“ Borgin fór á mis við nokkra milljarða Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Fiskflutningabíll valt: Veginum lokað Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur „Af hverju fólk festist í afbrotum“ Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Nýjast á mbl.is » Fyrstu spaðarnir komnir til landsins Skotið á skip í Homússundi Aðsend grein: Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Fékk nýlega að vita af 15 ára barnabarni Nói Síríus kynnir Sumarkroppið 2026: Bíó Kropp með piparbrjóstsykri Umræðan Sveitarfélög axli ábyrgð á Foreldrahúsi Byrjum umbætur í heilbrigðiskerfinu á réttum enda Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjárveitingavaldið þarf að hlusta Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Leyndardómur aðlögunarinnar Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin fór á mis við nokkra milljarða Verst að vera sökuð um „karllæga átakasækni“ Sala skorblaða á 20 milljónir einsdæmi Hesthúsasvæði fer í biðstöðu Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Byggingarleyfið ekki fellt úr gildi Fiskflutningabíll valt: Veginum lokað Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins Grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur „Af hverju fólk festist í afbrotum“ Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni Andlát: Birgir Valur Ágústsson Stórfelld skemmdarverk unnin í Hveragerði Sérsveitin kölluð út á Akureyri Hiti gæti náð allt að 20 stigum Næsta skref hljóti að vera að banna bíópopp Sigríður Björk svarar Vísi fullum hálsi Bílvelta á Hringbraut „Ef þetta væri lyf þá væru allir á því“ Hveragerði og Grindavík á efsta hættustigi Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Vinsælum veitingastöðum lokað Sérsveitin kölluð út á Akureyri X26: Ólík framtíðarsýn í Ölfusi Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Gos gæti brotist út í Hveradalabrekkunni