Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið er í örum vexti og áætlar að endurkvæmar tekjur þess verði í kringum 19 milljónir evra í ár, samanborið við 10 milljónir evra í fyrra, eins og fjallað er um í Viðskiptablaðinu sem kom út á miðvikudaginn síðasta. Sidekick lauk 55 milljóna dala B-fjármögnunarlotu árið 2022 og 20 milljóna dala A-fjármögnunarlotu árið 2020. Leiðandi fjárfestar í umræddum fjármögnunarlotum voru fjárfestingarfélagið Novator, Frumtak, Omega og erlendu vísisjóðirnir Wellington Partners og Asabys Partners. Tryggvi Þorgeirsson, forstjóri og annar stofnenda Sidekik, segir að félagið horfi til þess að fara í C-fjármögnunarlotu á næsta ári sem myndi styðja við frekari vöxt, bæði innri og ytri. Félagið sé í sambandi við marga stóra alþjóðlega vaxtarsjóði sem telja mikil tækifæri fólgin í stafvirknivæðingu heilbrigðiskerfa að hans sögn. Þess má geta að frá því að félagið lauk síðustu hlutafjáraukningu árið 2022 hefur það gefið út breytanleg skuldabréf í ákveðnum tilfellum. Félagið lauk þannig 7 milljóna evra útgáfu breytanlegra skuldabréfa fyrir tæpu ári, þar á meðal með þátttöku íslenskra fjárfesta. Sú útgáfa fór fram samhliða þess að félegaið gekk frá rúmlega 5 milljarða króna fjármögnunarsamningi við Evrópska fjárfestingarbankann. Sjá einnig Sidekick tryggir sér 5 milljarða fjármögnun frá EIB Skráning til skoðunar Tvö bandarísk félög í heilbrigðistæknigeiranum, Hinge Health og Omada Health, voru skráð á hlutabréfamarkað í fyrra. Fyrra félagið er í dag metið á 3,5 milljarða dala og það síðara á 750 milljónir dala. Tryggvi telur ofangreindar skráningar vera merki um aukinn áhuga fjárfesta á heilbrigðistæknilausnum og að markaðurinn sé opinn fyrir þessum fyrirtækjum. Eruð þið að horfa til skráningar? „Ég hef alltaf haft það í huga sem lokatakmark, þótt það séu ýmsar aðrar sviðsmyndir opnar í þeim efnum. Skráning á bandarískan markað er eitt af því sem mér þætti spennandi að skoða. Ef við höldum áfram að vaxa svona með innri og ytri vexti á næstu árum þá sjáum við skýra leið í það. Það er því klárlega eitt af því sem við munum skoða á næstu árum.“ Heildstæð nálgun Tryggvi stofnaði Sidekick Health árið 2014 ásamt Sæmundi Oddssyni, en þeir höfðu báðir verið starfandi læknar. Félagið hefur þróað 24 stafrænar heilbrigðismeðferðir sem stuðla að bættri heilsu fólks með ýmsa langvinna sjúkdóma. Sérstaða Sidekick er breidd í meðferðaframboði og að tæknikerfið (e. platform) sem félagið hefur þróað getur þjónustað sjúklinga þvert á fjölda sjúkdómaflokka. Þjónusta Sidekick felur í grunninn í sér að sjúklingar fá app í símann sem stillir sig af í samræmi við þarfir hvers og eins. Kerfið þekkir þannig hvaða sjúkdóma viðkomandi er með, hvaða lyf hann á að taka og hvenær, ásamt því að geta tengst ýmsum tækjum, t.d. blóðþrýstingsmæli. Sjá einnig Leiða þriðju kynslóð heilbrigðismeðferða Kerfið býður auk þess upp á hugræna atferlismeðferð til þess að hjálpa sjúklingum að takast á við kvíða og vanlíðan sem fylgir gjarnan slíkum meðferðum. Eins eru sjúklingar fræddir um lyf þeirra, sjúkdóma og sjúkdómseinkenni, mataræði og hvernig eigi að takast á við aukaverkanir. Að sama skapi fær heilbrigðisstarfsfólk aðgang að skjáborði þar sem það getur fjarvaktað sjúklinga og flaggað því þegar eitthvað fer úrskeiðis. „Það eru mörg dæmi um að svona fjarvöktun hafi leitt til þess að hægt var að grípa inn í. Fólk hefur t.d. fengið þögult hjartaáfall eða bakteríusýkingu í blóði eða aðrar versnanir sem þau áttuðu sig ekki á sjálf og þá er hægt að grípa inn í áður en afleiðingar verða alvarlegar og það kemur til langrar sjúkrahúsinnlagnar,“ segir Tryggvi. Fréttin er hluti af ítarlegu viðtali við Tryggva í Viðskiptablaðinu sem kom út á miðvikudaginn síðasta. Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni hér og annað efnið úr blaðinu hér .