Tuttugu meðlimir IceBAN leiddu nýlega 50 milljóna króna fjárfestingu í íslensku tæknifyrirtæki á fyrsta fjármögnunarstigi en stórt markmið IceBAN er að aðstoða englafjárfesta við að uppgötva og tengjast næstu vaxtartækifærum á Íslandi. Svava Björk Ólafsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri IceBAN, segir í samtali við Viðskiptablaðið að hún vilji sjá enn fleiri fjárfesta taka þátt í fjármögnunarverkefnum, sérstaklega í ljósi þeirra breytinga sem hafa átt sér stað á undanförnum árum. „Ný greining Samtaka iðnaðarins sýnir að útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar voru í fyrsta sinn hærri en útflutningstekjur sjávarútvegs á síðasta ári. Greinin stendur nú undir um 40% af heildarútflutningstekjum og um fjórðungi verðmætasköpunar í hagkerfinu.“ Sjá einnig Kuratech sækir 50 milljónir Næstu fjárfestakynningar IceBAN fara fram 10. mars nk. og munu fjölmörg fjárfestingartækifæri stíga á svið til að kynna sig. Svava segir að á englastigi séu fjármögnunarlotur yfirleitt á bilinu 5-35 milljónir króna þar sem einstakir englar leggja allt frá 500.000 krónum og upp í 20 milljónir króna hver. Hún bætir við að þegar fjárfestar starfi saman innan faglegs ramma skapist bæði áhættudreifing og sterkari aðkoma að uppbyggingu fyrirtækja. „Íslenskt nýsköpunarumhverfi hefur þegar séð hversu miklu öflugt englastig getur skilað. Sala Kerecis er skýrt dæmi um hvernig hópur englafjárfesta kom snemma að borðinu, studdi við uppbyggingu félagsins og naut síðar umtalsverðrar ávöxtunar, á sama tíma og samfélagið naut góðs af verðmætasköpuninni í formi starfa, útflutningstekna og alþjóðlegrar viðurkenningar.“