Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

4,4 milljarða fjár­mögnun til heilsu­tengdra verk­efna

Read Full Article →

Reitir hafa undirritað samkomulag um 4,4 milljarða verðtryggða lánsfjármögnun frá Norræna fjárfestingarbankanum, NIB, en samkvæmt fréttatilkynningu styður fjármögnunin við tvö uppbyggingarverkefni undir heilsutengda starfsemi. Fjármögnunin frá NIB nær til 10 ára og mun styðja við uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili við Nauthólsveg og læknamiðstöð við Ármúla 7-9 en heildarkostnaður verkefnanna er um 8,8 milljarðar króna. Verkefnin eru samkvæmt tilkynningunni til þess fallin að mæta áskorunum í heilbrigðiskerfinu og falla vel að stefnu Reita um að þróa og byggja upp fasteignir sem þörf er á í samfélaginu. Haft er eftir André Küüsvek, forseta og forstjóra NIB, að fjárfestingin sé liður í að bregðast við þeim áskorunum sem íslenska heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir og tryggja íslensku þjóðinni hágæðaþjónustu. Þá muni skilvirkari og skjótari aðgangur að hjúkrunarheimilum styðja sveitarfélög í að viðhalda jákvæðri fjárhagslegri afkomu. Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, segir félagið byggja á áratuga langri í fasteignageiranum og fara með stóraukin umsvif í þróun með áherslu á uppbyggingu sem gagnast samfélaginu. „Þessi tvö verkefni eru gott dæmi um hvernig hægt er að umbreyta núverandi byggingum á skilvirkan hátt til að mæta aðkallandi eftirspurn eftir hjúkrunarheimilum og húsnæði fyrir heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Fjármögnun NIB styður við stefnu okkar um að þróa hágæða fasteignir fyrir opinbera og einkarekna aðila í heilbrigðisþjónustu,“ segir Guðni. Í tilkynningunni er bent á að öldrun þjóðarinnar, takmarkað sjúkrahúsrými, og langir biðlistar eftir valkvæðum aðgerðum og sérfræðiþjónustu feli í sér miklar áskoranir. Þá er eftirspurn eftir hjúkrunarheimilum umtalsverð. Á Íslandi séu færri hjúkrunarrými á hverja 1.000 íbúa 65 ára og eldri samanborið við önnur Norðurlönd og spár benda til þess að fjöldi rýma þurfi að tvöfaldast fyrir árið 2040 til að mæta þörfum framtíðarkynslóða. Reitir vinna nú annars vegar að því að umbreyta skrifstofuhúsnæði við Nauthólsveg í hjúkrunarheimili sem mun rúma 87 íbúa og er áætlað að það taki til starfa fyrri hluta árs 2027. Í maí 2025 skrifuðu Reitir undir leigusamning við Ríkiseignir til 20 ára um útleigu á húsnæðinu. Framkvæmdir hófust strax í kjölfarið og miðar þeim vel. Velferð íbúa og starfsfólks, aðgengi fyrir alla, góð innivist og skjól- og sólrík útisvæði eru höfð að leiðarljósi við hönnun nýja hjúkrunarheimilisins, samkvæmt tilkynningunni. Upprunalegur hönnuður hússins við Nauthólsveg 50-52 er Gísli Halldórsson arkitekt en Arkís eru arkitektar yfirstandandi umbreytingar á hluta hússins úr skrifstofum í hjúkrunarheimili. Hins vegar er unnið að uppbyggingu á nýrri læknamiðstöð í Ármúla 7 og 9 fyrir Klíníkina, sem eykur afkastagetu í skurðaðgerðum um 50% með viðbót tveggja skurðstofa, tveggja aðgerðastofa fyrir minni háttar aðgerðir, stækkaðri legudeild og 28 læknastofum. Stærra húsnæði og bætt aðstaða muni veita skjótari aðgang að aðgerðum sem ekki eru bráðar og sérfræðitímum, og hjálpa þannig til við að létta álagi á opinbera heilbrigðiskerfið. Unnið er að uppbyggingu á nýrri læknamiðstöð í Ármúla 7 og 9 fyrir Klíníkina.

Share this article