Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Orku­veitan fær 4,6 milljarða lán frá NIB

Read Full Article →

Orku­veita Reykja­víkur hefur samið um 4,6 milljarða króna lán frá Norræna fjár­festingar­bankanum, NIB, til fjár­mögnunar á upp­byggingu við Hellis­heiðar­virkjun, sam­kvæmt kaup­hallar­til­kynningu sem birtist í dag. Nýja lánið bætist við fyrri fjár­mögnun frá sama banka og undir­strikar áfram­haldandi að­gengi Orku­veitunnar að er­lendu láns­fé til inn­viða­upp­byggingar. NIB og Orku­veitan undir­rituðu í desember 2023 tíu ára lána­samning að fjár­hæð 100 milljónir dala, jafn­virði um 13,8 milljarða króna á þeim tíma, til að fjár­magna vöxt hita­veitunnar og viðhald jarðgufu- og vatns­afls­virkjana á sunnan- og vestan­verðu Ís­landi. NIB hefur um langt skeið verið einn af stærri er­lendu lán­veit­endum Orku­veitunnar. Auk samningsins frá 2023 bendir bankinn á að hann hafi fjár­magnað byggingu Hellis­heiðar­virkjunar árið 2006 og gert annan lána­samning við fyrir­tækið árið 2020 vegna eflingar orku­vinnslu úr jarðhita og styrkingar raf­dreifi­kerfisins. Í til­kynningu NIB frá 2023 kom fram að því láns­fé yrði varið í fjár­festingar­verk­efni á árunum 2023 til árs­loka 2027.

Share this article