Heildartekjur íslenska heilbrigðistæknifyrirtækisins Sidekick Health námu 1,6 milljörðum króna í fyrra. Endurkvæmar tekjur námu yfir 10 milljónum evra á síðasta ári og áætlanir gera ráð fyrir að þær verði í kringum 19 milljónir evra í ár, m.a. vegna nýrra samninga í Bandaríkjunum og tveggja nýrra meðferða sem er verið að skrá hjá Lyfjastofnun Þýskalands. Tekjusamsetning félagsins hefur breyst hratt á liðnum árum með auknu vægi endurkvæmra tekna (e. recurring revenue). Áður var meirihluti tekna einskiptisgreiðslur vegna rannsóknar og þróunar en félagið hefur náð miklum framgangi í að auka áskriftartekjur sem renna styrkari stoðum undir reksturinn og auka verðmæti félagsins. Félagið hefur náð 90% árlegum meðalvexti í endurkvæmum tekjum síðustu fimm ár með blöndu af innri og ytri vexti. Þá stefnir Sidekick á að reksturinn verði orðinn arðbær (EBITDA breakeven) síðar á þessu ári. „Þetta er frábær staður til þess að vera. Það eru fá fyrirtæki í okkar geira sem eru komin með yfir tíu milljónir evra í endurkvæmar tekjur og að verða arðbær,“ segir Tryggvi Þorgeirsson , forstjóri og annar stofnenda Sidekick. Með þeim fremstu í heimi Tryggvi lýsir heilbrigðistæknigeiranum sem ungum geira sem hafi í raun verið að læra á sjálfan sig á síðustu árum. Hann segir Sidekick eitt af 5-10 öflugustu fyrirtækjunum í geiranum. Í þeim efnum má nefna að Sidekick fékk nýlega viðurkenning frá tímaritinu TIME sem eitt af átta fremstu fyrirtækjum heims í flokki stafrænna meðferða. Íslenska fyrirtækið var það eina frá Evrópu sem rataði á listann sem byggði á greiningu Statista á nokkrum mælikvörðum þar á meðal orðspori, notkun og fjárhagslegum styrk. Þá var Sidekick á lista Tech Tour Growth50 2026, þar sem 70 leiðandi vaxtafjárfestar völdu 50 öflugustu evrópsku fyrirtækin sem tilheyra nýrri kynslóð tæknifyrirtækja í álfunni og gætu orðið einhyrningar í framtíðinni. Fréttin er hluti af ítarlegu viðtali við Tryggva í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni hér og annað efnið úr blaðinu hér .