Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health á í samningaviðræðum um samstarf við einn af þremur stærstu sjúkratryggjendum Bandaríkjanna. Leiði þær viðræður til endanlegs samnings yrði félagið þá komið í samstarf við tvö af þremur stærstu sjúkratryggingafyrirtæki Bandaríkjanna. Sidekick hefur verið að sækja frekar inn á bandaríska markaðinn, nú síðast með nýju samstarfi við heilbrigðisfyrirtækið MOBE. Samstarfið við MOBE, sem fjárfesti samhliða beint í Sidekick, snýr að því að veita bandarískum sjúkratryggjendum aðgang að lausnum Sidekick. Lausnir íslenska félagsins voru teknar í gagnið hjá fjórum bandarískum sjúkratryggjendum í janúar. 80% heilbrigðiskostnaðar vegna fjölþætts vanda Sidekick hefur þróað 24 stafrænar heilbrigðismeðferðir sem stuðla að bættri heilsu fólks með ýmsa langvinna sjúkdóma. Sérstaða Sidekick er breidd í meðferðaframboði og að tæknikerfið (e. platform) sem félagið hefur þróað getur þjónustað sjúklinga þvert á fjölda sjúkdómaflokka. Sidekick er búið að eiga í samstarfi við Elevance Health, næst stærsta sjúkratryggingafélag Bandaríkjanna, frá árinu 2021. Tryggvi Þorgeirsson, forstjóri og annar stofnenda Sidekick, segir í viðtali í Viðskiptablaði vikunnar að samstarfið við Elevance, sem er stærsti viðskiptavinur íslenska félagsins, hafi reynst gríðarlega mikilvægt. „Það eru búin að vera mikil forréttindi og við höfum lært gríðarlega mikið af því að vinna með þeim í Medicare sjúkratryggingakerfinu fyrir eldri borgara, Medicaid fyrir lágtekjuhópa og í gegnum samninga við stóra vinnuveitendur. Við höfum þróað lausnirnar okkar þannig að þær passi vel inn í bandaríska heilbrigðiskerfið. Í dag erum við að vinna með Elevance í tíu sjúkdómaflokkum.“ Samstarf félaganna hófst í miðjum Covid-faraldrinum en fulltrúar heilbrigðistæknirisans höfðu þá samband til að kynna sér tækni og meðferðir Sidekick. „Þau sendu mér tölvupóst sem fór fyrst í ruslhólfið, en sem betur fer fann ég hann í tæka tíð. Við tók langt ferli þar sem þau rýndu starfsemi okkar ítarlega, hversu örugg og góð tæknilausnin okkar er og hversu árangursrík meðferðin er. Eftir langa skoðun og samanburð við aðrar lausnir á markaði völdu þau okkur til þess að stafvirknivæða það hvernig þau styðja við fólk með langvinna sjúkdóma og fjölþættan vanda.“ Tryggvi segir að um 80% af heilbrigðiskostnaði megi rekja til meðferðar fólks sem glímir við fjölþættan vanda, það er nokkra sjúkdóma í einu. Þessir stóru sjúkratryggjendur eins og Elevance, sem tryggir 47 milljónir Bandaríkjamanna, geta nú boðið þessum hópi aðgang að meðferðum og tæknilausn Sidekick. Rætt um ágæti lausnarinnar fyrir þingnefnd Mikil umræða hefur verið vestanhafs um hækkandi heilbrigðiskostnað. Gail Boudreaux, forstjóri Elevance, bar vitni fyrir þingnefnd Bandaríkjaþings í janúar þar sem hún var spurð hvað félagið væri að gera til að sporna við þessari þróun (sjá myndband neðst). Þar vitnaði hún sérstaklega í lausn sem nefnist Concierge Care, þar sem meðferðir og tækni Sidekick eru notuð til að styðja við og fjarvakta skjólstæðinga þeirra. Nefndi hún sem dæmi að lausnin hefði leitt til meira en 60% fækkunar á spítalainnlögnum vegna aukaverkana fólks í krabbameinsmeðferð. „Við erum mjög stolt að sjá þetta og fá umfjöllun á þessum vettvangi,“ segir Tryggvi. „Þetta er í takti við það sem við erum að sjá aftur og aftur. Rannsóknir sýna að meðferðir okkar bæta einkenni og líðan sjúklinga oft um 30-40%. Það er ekkert lítið. Fólki vegnar þá betur og á auðveldara með að halda sér við lyfjameðferð og aðra þætti meðferðar ef það er ekki líka að kljást við kvíða og vanlíðan.“ Nýlega voru gerðar breytingar á endurgreiðslum í Medicare-kerfinu, sem hafa t.d. haft neikvæð tekjuáhrif á Kerecis. Aðspurður segir Tryggvi að breytingarnar hafi ekki neikvæð áhrif á Sidekick. Hann segir alltaf erfitt að starfa við ytri óvissu vegna slíkra kerfisbreytinga en telur þó að breytingar í bandaríska heilbrigðiskerfinu og umræða þeim tengd geti aukið eftirspurn eftir lausnum félagsins. „Bandarískt heilbrigðiskerfi er nánast tvöfalt dýrara en víðast annars staðar. Þá einmitt þurfa þessir aðilar að horfa til þess hvernig þeir geta veitt sömu þjónustu með minni kostnaði. Við höfum sýnt fram á að með heilbrigðistæknilausnum sé hægt að bæta heilsu verulega með tilheyrandi minni kostnaði fyrir kerfið. Samanburðarrannsóknir hafa sýnt að notkun á lausnunum okkar leiðir oft til allt frá 20% og upp í 60% fækkunar á fyrirbyggjanlegum bráðamóttökukomum og sjúkrahúsinnlögnum.“ Fréttin er hluti af ítarlegu viðtali við Tryggva í Viðskiptablaðinu sem kom út á miðvikudaginn. Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni hér og annað efnið úr blaðinu hér . Hlusta má á erindi Gail Boudreaux, forstjóra Elevance, fyrir þingnefnd frá 25:00-30:10.