Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Orðlaus yfir nýrri meðferð

Read Full Article →

Íslenska heilbrigðistæknifyrirtækið Sidekick Health hefur á síðastliðnum þremur árum rutt sig inn á markað með lyfseðilsskyldar heilbrigðistæknilausnir í Þýskalandi (DiGA) með kaupum á tveimur fyrirtækjum, aidhere og PINK!. Samtals hafa þýskir læknar ávísað yfir 150.000 meðferðum félagsins. Sidekick er að bæta við tveimur meðferðum í Þýskalandi í ár og verður í kjölfarið með fjórar á þeim markaði. Nýjasta meðferðin miðar að því að draga úr einkennum og bæta líðan kvenna sem eru á tíðahvörfum. Um 85% kvenna sem ganga í gegnum tíðahvörf fá mikil einkenni af því. Yfirleitt eru konur settar á hormónameðferð en hún hentar ekki öllum að sögn Tryggva Þorgeirssonar, forstjóra Sidekick. „Við vorum að klára stóra slembistýrða rannsókn á þessari meðferð okkar í Þýskalandi. Ég var eiginlega alveg orðlaus þegar ég sá niðurstöðurnar. Það lítur út fyrir að bæting á lífsgæðum sé jafnvel meiri heldur en hjá þeim sem fá hormónameðferð, sem ég hefði varla trúað,“ segir Tryggvi og bætir við að niðurstöðurnar verði birtar í læknatímariti síðar á árinu. Vöxtur PINK! fór úr 5% í 75% eftir yfirtöku Sidekick Þýskaland innleiddi fyrir nokkrum árum reglugerð sem leyfir heilbrigðiskerfinu að meðhöndla heilbrigðistæknilausnir, sem skráðar eru sem lækningatæki, eins og lyfjameðferðir að uppfylltum ströngum skilyrðum. „Læknar geta því ávísað meðferðunum okkar og þær eru að fullu endurgreiddar af þýskum sjúkratryggingum,“ segir Tryggvi. Í gegnum kaup á aidhere árið 2023 tryggði Sidekick sér öflugt sölu- og markaðsnet auk meðferðar sem félagið hafði þróað við offitu sem Tryggvi segir að sé að gefast mjög vel. Sjá einnig Þýsk hápressa hjá Sidekick „Ári seinna keyptum við PINK!, sem er leitt af Dr. Piu Wülfing, kvensjúkdómalækni og sérfræðingi í brjóstakrabbameini, sem hefur þróað lyfseðilsskylda meðferð til að styðja við konur með brjóstakrabbamein. Við erum að sjá frábæran árangur af þeirri meðferð en hún er að leiða til um 30% bætingar á líðan og minnkunar á krabbameinstengdri þreytu.“ Tryggvi segir kaupin á PINK! gott dæmi um ytri vöxt sem félagið horfir til. Fram að yfirtökunni var árleg aukning í nýjum læknisávísunum hjá þýska félaginu í kringum 5% en á fyrsta árinu eftir að Sidekick keypti félagið er árlegur vöxtur þess kominn yfir 75% á þennan mælikvarða. Ein af hverjum sjö konum með brjóstakrabbamein í Þýskalandi nýtir nú stuðningsmeðferð PINK!. Tryggvi ásamt Dr. Piu Wülfing, stofnanda PINK!. © Aðsend mynd (AÐSEND) „Við erum orðin þekkt á þessum markaði sem aðili sem getur tekið við svona með­ferðum og ýtt undir þær. Stofn­endur ýmissa fyrir­tækja sem hafa þróað flottar með­ferðir við stökum sjúk­dómum hafa því leitað til okkar,“ segir Tryggvi. „Það eru tals­verð tækifæri fyrir samþjöppun á þessum markaði en með henni næst oft fram mikið kostnaðar­hag­ræði af því að það er mjög kostnaðar­samt að halda aðeins utan um eitt lækningatæki. Með okkar fjöl­breytta fram­boði og sterku tækni­lausn getum við samnýtt inn­viði og jafn­framt stutt við nýjar með­ferðir með öflugu sölu- og markaðs­neti. Við erum því stöðugt að meta sam­bæri­leg tækifæri og hvaða með­ferðir passa inn í okkar fram­boð.“ Fréttin er hluti af ítarlegu viðtali við Tryggva í Viðskiptablaðinu sem kom út á miðvikudaginn. Áskrifendur geta lesið greinina í heild sinni hér og annað efnið úr blaðinu hér .

Share this article