- What: Icelandic cybersecurity firm supported election security in Bangladesh
- Impact: Provided guidance and security services for digital election infrastructure
Íslenska netöryggisfyrirtækið Syndis var fengið til að veita ráðgjöf og öryggisþjónustu í tengslum við rafræna innviði í nýliðnum kosningum sem áttu sér stað í Bangladess. Verkefnið snerist um mat og vernd stafrænna kerfa sem voru notuð í kosningunum. Kosningar í Bangladesh fóru fram í febrúar í flóknu og viðkvæmu pólitísku umhverfi og var því leitað sérstaklega til fyrirtækis utan svæðisins til að tryggja sjálfstæða og faglega nálgun við öryggismat og vernd rafrænna kerfa í tengslum við kosningarnar. Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, segir að tengiliðir fyrirtækisins hafi haft samband við Syndis í fyrrahaust en félagið þurfti þó að fara leynt með aðkomu sína að verkefninu fram að kosningum. „Syndis hefur gott og sterkt orðspor á alþjóðavísu og þarna þurfti að velja óháðan aðila í Evrópu sem væri ekki litaður af pólitík eða spillingu á svæðinu. Þetta voru kosningar sem Sameinuðu þjóðirnar tóku þátt í og vildu allir tryggja að lýðræðislegar kosningar færu vel fram. Það eru náttúrulega stór ríki þarna í kring eins og Kína og Indland sem hefðu ef til vill viljað hafa áhrif á hvað færi fram þarna.“ Sjá einnig Varnaruppbygging í formi stafræns fullveldis Hann segir að það hafi verið mikill heiður fyrir Syndis að fá að taka þátt í verkefninu og að aðkoma félagsins sé jafnframt merki um sterka stöðu íslensks hugbúnaðar á alþjóðavísu. „Þátttaka í verkefni af þessu tagi er viðurkenning á þeirri sérfræðiþekkingu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins.“ „Bangladess er gríðarlega stórt ríki og í þessu tilfelli þá hjálpuðum við að gera íbúum Bangladess, sem búa í öðrum löndum, kleift að kjósa. Við gerðum öryggisúttektir, settum upp ákveðið skráningarkerfi og höfðum tæknilega umsjón með þeim kerfum og innviðum sem þjónustuðu þá hundruð þúsundir sem búa utan Bangladess.“ Anton segir að Syndis hafi einnig aðstoðað framlínustarfsfólk í Bangladess, eins og lögreglu- og hermenn, við að kjósa með svipuðum hætti en þó innan landamæra Bangladess. „Þátttaka í verkefni af þessu tagi er viðurkenning á þeirri sérfræðiþekkingu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins. Þegar um er að ræða kerfi sem tengjast lýðræðislegum ferlum er mikilvægt að öryggi þeirra sé metið af aðilum sem njóta trausts og hafa djúpa tæknilega þekkingu.“