Innlent | Morgunblaðið | 16.3.2026 | 21:25 Gervigreindin nýtt bæði í vörn og sókn Margar tilraunir voru gerðar til netárása í kosningunum. Hér má sjá mynd frá talningarstöð þar sem atkvæði voru talin handvirkt. AFP/Munir Uz Zaman Brynhildur Glúmsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Gervigreind Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir Vilja stíga alvöruskref í gervigreind Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Æfa samskipti með gervigreind Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne » Fleiri tengdar fréttir Íslenska netöryggisfyrirtækið Syndis var fengið til að veita ráðgjöf og öryggisþjónustu í tengslum við rafræna innviði sem tengdust kosningunum sem haldnar voru 12. febrúar í Bangladess. Verkefnið laut að mati og vernd mikilvægra rafrænna kerfa sem notuð eru við framkvæmd og umsýslu kosninga. Margar tilraunir gerðar Anton Már Egilsson forstjóri Syndis segir verkefnið hafa gengið mjög vel, en full ástæða hafi verið til að fá þau í verkefnið þar sem margoft hafi verið reynt að misnota kerfið og hafa áhrif á kosningarnar. „Þetta er land sem hefur átt í erfiðleikum með þessi mál, en þessar kosningar tókust og það er gaman að sjá það svona eftir á,“ segir Anton Már í samtali við Morgunblaðið. Anton Már Egilsson segir netárásum hafa fjölgað milli ára. Spurður hvernig komið hafi til að fyrirtæki á Íslandi var fengið til að standa vörð í landi sem er eins fjarri okkur og Bangladess segir hann það einmitt hafa verið það sem leitað var eftir. „Það kemur kannski að einhverju leyti til af því að við erum svo langt frá þeim, það er leitað til okkar því það er leitað að hæfum aðila í Evrópu til að fara aðeins út fyrir svæðið svo það séu ekki einhver lönd þarna nálægt sem vilja mögulega hafa áhrif á kosningarnar. Þess vegna er leitað til Evrópu og Syndis hefur bara sterkt og gott orðspor. Þannig endaði þetta verkefni í okkar höndum.“ Árásum fjölgar milli ára Starfsmenn Syndis þurftu þó ekki að fara til Bangladess til að aðstoða við kosningarnar heldur gátu þeir verið í sínu heimalandi, en Syndis er ekki bara með starfsstöð á Íslandi heldur einnig í Svíþjóð og Póllandi. Flestir starfsmennirnir eru þó hér á landi. Nú starfa um 80 manns hjá fyrirtækinu og tóku tíu til fimmtán þátt í kosningaverkefninu í Bangladess að sögn Antons. Hann segist einnig hafa séð aukningu netárása milli ára. „Já, við höfum séð aukningu í tilraunum til netárása milli ára, en sem betur fer tekst okkur hjá okkar viðskiptavinum að hindra það. Nýjasta opinbera málið er að það var gerð árás á Grund.“ Í desember gerðu tölvuþrjótar árás á netþjóna elliheimilisins Grundar en skjót viðbrögð komu í veg fyrir að hún hefði mikil áhrif á starfsemi heimilanna. „Það eru endalausar tilraunir gerðar í þessu og við sjáum og munum sjá aukningu þar sem gervigreind hjálpar glæpamönnum í þessu, en við getum sem betur fer beitt henni á móti. Stríð gervigreindarinnar bæði í vörn og sókn.“ Hvernig þessi reynsla geti nýst starfsemi Syndis hér á landi segir Anton tækifærið að fá að sjá um öryggismálin í þessum kosningunum geta bæði opnað á frekari verkefni úti í heimi en einnig geti það nýst hér á landi. „Þarna var verið að setja hluta kosninganna í rafrænt form og það er alveg sama hvað væri gert á Íslandi í þessum efnum, þá værum við hæf til að ganga úr skugga um að allt væri gert rétt og yrði vel útfært og það er bara það sem við gerum hér dagsdaglega. En auðvitað getur þetta líka opnað á verkefni alveg eins og þetta, töluvert langt frá okkur, og sýnir að við erum hæf til þess að takast á við svona verk alveg sama hvar í heiminum það er.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Gervigreind Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir Vilja stíga alvöruskref í gervigreind Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Æfa samskipti með gervigreind Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Reyndi að taka líf sitt 11 ára gamall Gervigreindin nýtt bæði í vörn og sókn Breiðablik skoraði fjögur og fór í undanúrslit Jürgen Habermas er látinn Szoboszlai skaut á stuðningsmenn Liverpool Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump vill aðstoð frá NATO og Kína Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Búið að slökkva eldinn í rútunni Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Loka fyrir umferð vegna rannsóknar Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Reyndi að taka líf sitt 11 ára gamall Gervigreindin nýtt bæði í vörn og sókn Breiðablik skoraði fjögur og fór í undanúrslit Jürgen Habermas er látinn Szoboszlai skaut á stuðningsmenn Liverpool Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikill reykur úr skíðlogandi rútu á Völlunum Trump vill aðstoð frá NATO og Kína Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag Hríðarveður norðvestanlands Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Loka fyrir umferð vegna rannsóknar Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir