Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fátt ef eitthvað gæti haft jafnmikil áhrif

Read Full Article →

Gervigreindarbyltingin er sennilega ein stærsta tæknibylting sögunnar. Ef Ísland ætlar að njóta góðs af henni í formi aukinna útflutningstekna og verðmætasköpunar þurfum við að hreyfa okkur mun hraðar,“ segir Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins (SI). Samtökin hafa að undanförnu talað um mikilvægi þess að breyta tækifærum gervigreindar í ávinning fyrir samfélagið. Sigríður segir að fjölbreyttari og öflugri fjarskiptatengingar séu algjör lykilforsenda fyrir því að auka tekjur og byggja upp öflug fyrirtæki og verðmæt störf á sviði gervigreindar. „Fjarskiptasæstrengur til Bandaríkjanna myndi opna á stóraukin vöru- og þjónustuviðskipti á milli Íslands og Bandaríkjanna því hann myndi opna á möguleika á hýsa og sinna gervigreindarinnviðum á Íslandi, með tilheyrandi útflutningstekjum fyrir okkur.“ Í september 2024 var greint frá áformum bandaríska félagsins Modularity og Borealis Data Center, sem rekur þrjú gagnaver hér á landi, um lagningu sæstrengs til Bandaríkjanna og mögulega gagnaversþjónustu fyrir stór verkefni á sviði gervigreindar. Sjá einnig Opnar á risa­gagna­ver á Ís­landi Á fundi SI í október sl. um þróun og áhrif gervigreindar í heiminum og tækifærum Íslands í því samhengi sagði Sigríður að taka þyrfti ákvarðanir hratt ef áhugi er fyrir því að byggja upp stafræna innviði til Bandaríkjanna. Hún nefndi þannig að ef það ætti að takast að hefja rannsóknir á hafsbotninum í sumar í tengslum við lagningu sæstrengs vestur um haf þá þyrfti að taka ákvörðun fljótlega. „Við hjá Samtökum iðnaðarins höfum verið að ýta þessu máli áfram og liðka fyrir samtölum. Við teljum að fjárfesting í fjarskiptasæstreng myndi hafa mikil og góð áhrif á verðmætasköpun hér á landi og höfum verið að hvetja stjórnvöld til að hafa áhrif á þessar ákvarðanir,“ segir Sigríður. „Einkaaðilar í Bandaríkjunum eru mjög áhugasamir um verkefnið og aðilar hér heima. En til þess að gæta hagsmuna Íslands sem best er mikilvægt að íslensk stjórnvöld sitji við borðið og hafi áhrif á útfærsluna.“ Sigríður sýndi þessa mynd af núverandi fjarskipta- og gagnasæstrengjum heims á Iðnþingi í dag. Sigríður segir því að fátt ef eitthvað gæti haft jafnmikil áhrif á viðskipti við Bandaríkin og gagnasæstrengur vestur um haf. Sjá einnig Ísland gæti spilað stórt hlutverk „Með honum væri hægt að stórauka þjónustuútflutning frá Íslandi til Bandaríkjanna og við værum komin í sterk viðskiptatengsl við mörg af verðmætustu fyrirtækjunum í Bandaríkjunum. Slík fjárfesting krefst mjög lítils af okkar hálfu en myndi skila sér í auknum útflutningstekjum, fjölbreyttum og verðmætum störfum og auknu öryggi Íslands.“ Sigríður sagðist vona að Ísland verði hluti af þessari mynd yfir skipulagaða fjarskipta- og gagnasæstrengi, sem búið er að staðfesta, fyrr en seinna. Fréttin er hluti af viðtali við Sigríði í sérblaðinu Iðnþing 2026 sem fylgdi Viðskiptablaði vikunnar.

Share this article