Netöryggisfyrirtækið Syndis stendur nú á stórum tímamótum. Í þessari viku verður stigið stórt skref þegar sænska upplýsingaöryggisfyrirtækið ITSB, sem Syndis festi kaup á í fyrra, mun alfarið renna inn í uppfært og eflt vörumerki Syndis. Samhliða þessu kynnir fyrirtækið aukið vöruframboð og boðar mikla sókn á norræna markaði. ITSB var stofnað árið 2012 og er með höfuðstöðvar í Sundsvall í Svíþjóð. Félagið hefur áralanga reynslu á sviði gagnaöryggis, persónuverndar og tæknilegra lausna sem mæta þörfum bæði einstaklinga og opinberra aðila. „Með samruna Syndis og ITSB undir einu merki verður til enn öflugri heild sem getur þjónustað viðskiptavini betur. Vöruframboð fyrirtækisins eykst til muna, sem gerir því kleift að bjóða heildstæðar og víðtækar öryggislausnir sem svara kalli nútímans,“ segir Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis. Sóknar- og varnarþekking í einni heild Syndis er dótturfélag Skyggnis Eignarhaldsfélags, sem hét áður Origo. Auk þess að festa kaup á sænska félaginu í fyrra festi Syndis einnig kaup á íslenska ráðgjafafyrirtækinu Ísskógum. Syndis hefur vaxið ört á síðustu árum og nam velta þess yfir einum milljarði króna árið 2024, samanborið við 679 milljónir árið áður. Ísskógar var stofnað árið 2018 af Oddi Hafsteinssyni. Félagið hefur aðstoðað við mat, innleiðingu, framkvæmd og eftirlit með upplýsingaöryggismálum fyrirtækja og stofnana. Í ársreikningi Skyggnis kemur fram að fyrrnefnd kaup, auk innri vaxtar Syndis, séu skref í stefnu Syndis að byggja upp heildstæða þjónustu á sviði öryggismála, þar sem bæði sóknar- og varnarþekking séu sett saman í eina sterka heild. Samstarfsaðilar í Danmörku og Finnlandi Fyrrgreind uppbygging kemur í kjölfar stöðugs vaxtar fyrirtækisins að sögn Antons. Á síðasta ári hafi Syndis opnað skrifstofu í Stokkhólmi sem hafi þegar fest sig vel í sessi á sænska markaðnum. Til að fylgja þeim árangri eftir hafi Syndis nú ráðið til sín danskan sérfræðing og gert stefnumótandi samstarfssamning við öryggis ráðgjafarfyrirtækið Dedico í Danmörku. Þannig er byrjað að selja vörur og þjónustu Syndis beint til danskra fyrirtækja. Ofan á þennan vöxt hefur Syndis einnig tryggt sér öflugan samstarfsaðila í Finnlandi. „Við höfum gert samning við fyrirtækið Abero Finland, sem mun héðan í frá bjóða upp á og selja vörur og þjónustu Syndis á finnska markaðnum. Þetta samstarf sameinar djúpa tækniþekkingu Syndis og sterkt tengslanet Abero á staðnum. Markmiðið er að hjálpa fyrirtækjum að ganga lengra en hefðbundin reglufylgni og aðstoða þau við raunverulega áhættustýringu,“ segir Anton. Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis. © Aðsend mynd (AÐSEND) Teymið í Helsinki er leitt af Leif Johansson, sem hefur víðtæka reynslu frá einhverjum öflugustu netöryggisfélögum Finnlands. Meðal þeirrar þjónustu sem viðskiptavinum á Norðurlöndunum stendur nú til boða í gegnum þetta samstarf eru innbrotsprófanir, sem felst í greining á veikleikum í kerfum áður en tölvuþrjótar nýta sér þá, og vaktþjónusta og viðbragð, sem felur í sér sólarhringsvöktun og hraðvirk viðbrögð við öryggisatvikum. Þá stendur þeim einnig til boða stefnumótandi og raunhæf öryggisráðgjöf sem sameinar reynslu ráðgjafa Abero og tæknilegan styrk Syndis. „Við stöndum á algjörum tímamótum. Með því að sameina ITSB og Syndis undir einu sterku vörumerki og stórauka vöruframboð okkar erum við betur í stakk búin en nokkru sinni fyrr til að sækja fram. Við höfum þegar náð sterkri fótfestu í Svíþjóð og með nýju og öflugu samstarfi í Finnlandi og Danmörku erum við að svara gríðarlegri eftirspurn eftir íslenskri sérþekkingu í netöryggi á öllum Norðurlöndunum,“ segir Anton. Hann segir Syndis vera leiðandi fyrirtæki á sviði netöryggis sem sérhæfi sig í að verja stafræna innviði fyrirtækja og stofnana. Með stórauknu vöruframboði og örum vexti í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku skipi Syndis sér nú sess sem einn af helstu samstarfsaðilum í netöryggismálum á norrænum markaði. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .