Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Myndir: Öryggisráðstefna Syndis

  • What: Security conference in Iceland
  • Impact: Security professionals discuss threats
Read Full Article →

Öryggisráðstefna Syndis fór fram í Hörpu í gær og þar mætti fjöldi fólks sem vinnur á sviði netöryggis til að fjalla um helstu ógnir sem fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar standa frammi fyrir. Brynhildur Ottósdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir og Íris Leósdóttir. © Bent Marinósson (Bent Marinósson) Meðal fyrirlesara voru netöryggissérfræðingar sem stýra vörnum hjá stórum stofnunum í Evrópu. Má þar nefna þær Petru Klein og Helénu Malm frá Swedbank. Jón Haraldsson og Einar Orri Þormar. © Bent Marinósson (Bent Marinósson) Þær starfa í miðju hringiðunnar hjá einum stærsta banka Norðurlandanna og búa yfir innsýn í hvernig á að byggja upp öryggismenningu. Pétur Thors, Einar Rúnarsson, Benedikt Rúnarsson og Kjartan Þorsteinsson. © Bent Marinósson (Bent Marinósson) Paula Januszkiewicz var einnig með fyrirlestur en hún er einn virtasti sérfræðingur heims þegar kemur að öryggi innviða og hefur eytt áratugum í að hjálpa fyrirtækjum að loka glufum sem aðrir sjá ekki. Þór Sigurðsson, Edda Hauksdóttir, Hörður Sveinsson og Ólafur Hannesson. © Bent Marinósson (Bent Marinósson) Ásamt þeim mætti Geert Baudewijns, sem er leiðandi í baráttunni gegn lausnargjaldsárásum í Evrópu. Guðmundur Ingason, Guðjón Ingi Ágústsson og Óskar Ingi. © Bent Marinósson (Bent Marinósson) Ragnar Sigurðsson, netöryggissérfræðingur frá Syndis, hélt einnig erindi en hann fjallaði um það hvernig sterk viðbragðsmenning geti hjálpað fyrirtækjum og stofnunum að bregðast hraðar og betur við árásum þegar á reynir. Anton Már Egilsson, forstjóri Syndis, og Ari Daníelsson, forstjóri Origo. © Bent Marinósson (Bent Marinósson) Þórdís Kolbrún Reykfjörð, þingmaður og fyrrum ráðherra, hélt einnig erindi um stöðu lítillar þjóðar eins og Íslands í netheimum. Auður Anna Jónsdóttir, Eva Demireva, Stefanía Berndsen, Alfa Björnsdóttir og Marta Scluneger. © Bent Marinósson (Bent Marinósson) „Við erum afar stolt af því að bjóða upp á þessa öflugu sérfræðinga á öryggisráðstefnu okkar. Þetta er fólk sem talar á stærstu ráðstefnum heims og það er gríðarlegt tækifæri fyrir íslenska stjórnendur og sérfræðinga að fá þessa þekkingu beint í æð hér heima. Stafrænar ógnir þekkja engin landamæri og árásir á íslensk fyrirtæki eru orðnar hluti af daglegum veruleika,“ segir Óskar Ingi, markaðsstjóri Syndis.

Share this article