Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Hjálpum fyrirtækjum að búa sig undir það óvænta“

Read Full Article →

Ragnar Sigurðsson, netöryggissérfræðingur hjá Syndis, verður meðal fyrirlesara á Öryggisráðstefnu Syndis sem fram fer í Hörpu 9. apríl nk. Þar verður fjallað um það nýjasta sem snýr að netárásum á fyrirtæki og stofnanir og hvernig best er að bregðast við þeim. Á ráðstefnunni mun Ragnar fjalla um hvernig hægt er að læra af fyrirmynd sem margir þekkja til að bæta viðbúnaðinn fyrir netárásum. Markmiðið er að sýna hvernig sterk viðbragðsmenning getur hjálpað okkur að bregðast hraðar og betur við þegar á reynir. Fleiri þekktir erlendir sérfræðingar í netöryggismálum verða einnig með erindi á ráðstefnunni. Má þar nefna Petru Klein og Helénu Malm frá Swedband, einum stærsta banka Norðurlandanna, Paulu Januszkiewicz, sem er einn virtasti sérfræðingur heims, David Jacoby, sem er margverðlaunaður fyrir störf sín í netöryggi, og Geert Baudewijns, sem er leiðandi í baráttunni gegn lausnargjaldsárásum í Evrópu. Sjá einnig Syndis aðstoðaði við kosningar í Bangladess „Við hjálpum fyrirtækjum að búa sig undir það óvænta. Þegar árás kemur og kerfin liggja niðri ráðast úrslitin af fólkinu. Viðbragðsgetan er ekki bara í tækninni. Hún er í menningunni; hvort fólk hafi æft saman, viti hver gerir hvað og treysti hvert öðru fyrir álagi. Við prófum þetta með skrifborðsæfingum, setjum viðbragðsteymið í herbergi og látum það vinna sig í gegnum raunverulega atburðarás,“ segir Ragnar. Hann mun einnig taka björgunarsveitir og viðbúnað þeirra fyrir í erindi sínu á ráðstefnunni, þar á meðal hvernig björgunarsveitirnar búi sig undir óvæntar aðstæður. „Óvissa, tímapressa, ófullkomnar upplýsingar og fólk sem þarf að bregðast við aðstæðum sem það hefur aldrei séð áður. Og björgunarsveitirnar hafa leyst þetta á kerfisbundinn hátt, með áratuga reynslu. Ég ætla á ráðstefnunni að ganga í gegnum kerfið þeirra, þjálfunina, stjórnskipulagið, samskiptakerfin, samhæfinguna milli stofnana og sýna hvernig sömu meginreglur eiga við í upplýsingatækni.“

Share this article