Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkjaher hafi grandað og gjöreyðilagt tíu skip sem útbúin voru til þess að koma fyrir tundurduflum. Forsetinn segir skipin ekki hafa verið í notkun þegar árásin átti sér stað. Þetta kemur fram í færslu sem forsetinn birti á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Fyrr í kvöld birti Trump aðra færslu þar sem hann varaði Írana við því að koma fyrir tundurduflum við Hormússund. Eins bætti hann við að yrði það gert muni Bandaríkjaher grípa til stórfelldra hernaðaraðgerða. Öll þau skip sem talin eru útbúin tundurduflum verði sprengd í loft upp - á sama máta og þau sem voru notuð í meintu fíkniefnasmygli á Karíbahafi fyrir nokkru. Í frétt CNN sem birt var fyrr í kvöld er haft eftir heimildarmönnum að Íranar hafi þegar komið fyrir tundurduflum á sundinu, Trump sagði þó sjálfur í færslu sinni á Truth Social að slíkar aðgerðir hafi ekki verið staðfestar. „Ef Íran hefur komið fyrir tundurduflum á Hormússundi, þótt við höfum þó ekki heimildir fyrir því, þá viljum við að þau verði fjarlægð samstundis!“ Segir Donald Trump. Grandað tíu skipum Í færslu sem Bandaríkjaforseti birti stuttlega eftir birtingu fyrri færslunnar segir hann að Bandaríkjaher hafi á seinustu klukkustundum grandað tíu skipum sem grunuð eru um að hafa komið fyrir tundurduflum á Hormússundi. Siglingarleiðin um Hormússund er afar mikilvæg en um hana fer tæplega fimmtungur allrar olíuframleiðslu heimsins. Stjórnvöld í Teheran hafa gefið út að engin olía frá Persaflóa muni fara um sundið meðan stríðið geisar.