Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkjaher grandaði 16 skipum nærri Hormússundi

Read Full Article →

Miðstjórn bandaríska hersins, CENTCOM, segir að Bandaríkjaher hafi grandað og gjöreyðilagt 16 skip sem útbúin voru til þess að koma fyrir tundurduflum á Hormússundi. Greint er frá þessu í færslu miðstjórnarinnar á samfélagsmiðlinum X. Forsetinn segir skipin ekki hafa verið í notkun þegar árásin átti sér stað. Í færslunni segir að herinn hafi gert 16 írönsk skip óvirk, þau hafi öll verið útbúin til þess að koma fyrir tundurduflum. Trump varaði við Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í kvöld færslu á Truth Social þar sem hann varaði Írana við því að koma fyrir tundurduflum við Hormússund. Eins bætti hann við að yrði það gert muni Bandaríkjaher grípa til stórfelldra hernaðaraðgerða. Öll þau skip sem talin eru útbúin tundurduflum verði sprengd í loft upp - á sama máta og þau sem voru notuð í meintu fíkniefnasmygli á Karíbahafi fyrir nokkru. Í frétt CNN sem birt var fyrr í kvöld er haft eftir heimildarmönnum að Íranar hafi þegar komið fyrir tundurduflum á sundinu, Trump sagði þó sjálfur í færslu sinni á Truth Social að slíkar aðgerðir hafi ekki verið staðfestar. „Ef Íran hefur komið fyrir tundurduflum á Hormússundi, þótt við höfum þó ekki heimildir fyrir því, þá viljum við að þau verði fjarlægð samstundis!“ Segir Donald Trump. Grandað 16 skipum Í færslu sem Bandaríkjaforseti birti stuttlega eftir birtingu fyrri færslunnar segir hann að Bandaríkjaher hafi á „seinustu klukkustundum“ grandað tíu skipum sem grunuð eru um að hafa komið fyrir tundurduflum á Hormússundi. CENTCOM staðfesti stuttu seinna að skipin hefðu verið 16 talsins. Siglingarleiðin um Hormússund er afar mikilvæg en um hana fer tæplega fimmtungur allrar olíuframleiðslu heimsins. Stjórnvöld í Teheran hafa gefið út að engin olía frá Persaflóa muni fara um sundið meðan stríðið geisar.

Share this article