Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Ekki gefast upp“

Read Full Article →

Færni á vinnumarkaði er starfstengt nám fyrir fatlað fólk í atvinnuleit sem er að stíga inn á almenna vinnumarkaðinn. Í Kastljósi kvöldsins var rætt við nemanda sem hafði fallega reynslusögu að segja. „Mér leið eins og ég hefði ekkert annað - annaðhvort þetta eða að vera einhver sófakartafla forever.” Daníel Smári Bjarnason er einn þeirra sem hafa öðlast betra líf með því að sækja námið en það gerði hann í gegnum Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar. Fyrirtækið Jóhann Rönning tók á móti Daníel í starfsþjálfun á Akureyri. Hann segir fyrsta daginn hafa verið stressandi en að góður vinnufélagi hafi tekið á móti honum. „Ég fékk besta manninn hérna - hann Fannar Frey.” Fannar Freyr Gíslason þjónustustjóri segir samstarfið hafa verið einstaklega gefandi. „Hann er alveg geggjaður.“

Share this article