Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hættir sem framkvæmdastjóri Eignaumsjónar

Read Full Article →

Leit er hafin að nýjum framkvæmdastjóra Eignaumsjónar hf. þar sem Daníel Árnason hefur ákveðið að láta af störfum á árinu og hefur starfið þegar verið auglýst. Daníel hefur gegnt stöðunni í tæpa tvo áratugi. Hann segir ýmsar ástæður liggja að baki þessari ákvörðun sinni en Daníel mun þó sitja áfram í stjórn félagsins. „Ég verð 67 ára á þessu ári og tel tíma kominn til að sinna mér sjálfum og mínum nánustu í auknum mæli. Þegar ég var ráðinn til félagsins árið 2007 var þjónusta af þessu tagi lítt þekkt. Viðskiptavinir voru þá á bilinu 40-50 húsfélög og starfsmennirnir fjórir talsins. Síðan er mikið vatn til sjávar runnið, hús- og rekstrarfélög um fasteignir í þjónustu hjá Eignaumsjón eru orðin um 1.350 talsins og fastir starfsmenn 65,“ segir Daníel. Sjá einnig Eigna­um­sjón tekur við starf­semi Rekstrar­um­sjónar Mikill vöxtur hefur verið í starfsemi Eignaumsjónar undanfarin ár en í tilkynningu frá félaginu segir að fjárhagsleg staða sé traust og hafa kröfur sömuleiðis aukist um nýjar útfærslur á þjónustu og nýsköpun. „Með hliðsjón af þessu tel ég tímabært að ég stígi til hliðar og við finnum yngri leiðtoga í brúna hjá Eignaumsjón, nýjan framkvæmdastjóra sem fái tækifæri til að leiða farsællega þessa framtíðarvegferð félagsins,“ bætir Daníel við.

Share this article