Viðskipti | mbl | 13.5.2026 | 16:10 Daníel verður forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Daníel F. Guðbjartsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Ljósmynd/Íslensk erfðagreining Setja bókamerki Íslensk erfðagreining hefur ráðið Daníel F. Guðbjartsson í starf forstjóra fyrirtækisins. Daníel mun leiða starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar á Íslandi og áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins sem einnar öflugustu rannsóknarmiðstöðvar heims á sviði erfðafræði mannsins, að því er segir í tilkynningu. Fram kemur að með ráðningunni stefni móðurfélagið, alþjóðlega líftæknifyrirtækið Amgen, að því að efla enn frekar vísindastarf Íslenskrar erfðagreiningar og efla starf fyrirtækisins til uppgötvunar nýrra lyfjamarka og dýpri skilnings á meinafræði sjúkdóma. „Daníel hefur starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu frá árinu 1998 og gegnt þar lykilhlutverki í vísindastarfi og vexti fyrirtækisins. Hann var áður yfirmaður tölfræðigreiningar og tók við stöðu yfirvísindamanns hjá félaginu á síðasta ári,“ segir í tilkynningunni. Rétt rúmt ár er liðið síðan Kára Stefánssyni var sagt upp sem forstjóra fyrirtækisins. Frétt af mbl.is Umsvifalaust tilkynnt um starfslok Vaxið og þróast með ÍE í tæpa þrjá áratugi Daníel hafi átt ríkan þátt í að leggja þann aðferðafræðilega grunn sem umfangsmiklar stofnerfðafræðirannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar byggi á. Þá hafi hann veitt fjölda ungra vísindamanna leiðsögn hér á landi og tekið virkan þátt í öflugu alþjóðlegu vísindasamstarfi. „Ég hef fengið tækifæri til að vaxa og þróast með Íslenskri erfðagreiningu í tæpa þrjá áratugi og hlakka til að takast á við þetta nýja hlutverk. Við lifum tíma mikilla framfara í tilraunatækni og greiningaraðferðum, ekki síst á sviði gervigreindar,“ er haft eftir Daníel. „Við munum áfram leggja áherslu á hágæða vísindastarf og trausta gagnagreiningu til að skapa nýja þekkingu sem dýpkar skilning okkar á sjúkdómum.“ Djúp sérþekking „Daníel býr yfir djúpri sérþekkingu á þeim vísindalega og aðferðafræðilega grunni sem starfsemi og rannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar byggja á,“ er haft eftir Howard Chang, aðstoðarforstjóra alþjóðlegra rannsókna og vísindastjóra Amgen. „Íslensk erfðagreining gegnir áfram lykilhlutverki í alþjóðlegu rannsóknastarfi okkar og stefnu. Við munum byggja áfram á traustum grunni fyrirtækisins sem gegnir lykilhlutverki í erfðarannsóknum og stuðlar að raunverulegum framförum og framþróun í þágu sjúklinga.“ Frétt af mbl.is Sagðist aldrei ætla að hætta Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Baðlónum drekkt með skattheimtu Sigurður Már Jónsson Skáldaraunir, pólitík og verðlaun Fleira áhugavert Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur Mikill munur eftir sveitarfélögum Segir Kristrúnu fara með dylgjur Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Var skárri en ekkert fyrir neytendur AGRD Partners fjárfesti í BBA//Fjeldco Kaup Styrkáss á Gallon fá grænt ljós Frumkvæðið frá einkageiranum Karen Björk ráðin til Rastar Fyrrverandi stjórnendur Símans kaupa Set Gengi Icelandair lækkar í skugga kjaradeilu Þrotabúið fær ávinning af Möltudæminu Spá 4,9% verðbólgu í maí Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Fyrrverandi stjórnendur Símans kaupa Set Þrotabúið fær ávinning af Möltudæminu Karen Björk ráðin til Rastar Spá 4,9% verðbólgu í maí Gengi Icelandair lækkar í skugga kjaradeilu Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Kvikumenn fá ekki að áfrýja og verða að greiða tekjuskatt Sjálfbærni er góð fyrir viðskiptin Frumkvæðið frá einkageiranum Framkoman situr lengi í fólki Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Framkoman situr lengi í fólki Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Fyrrverandi stjórnendur Símans kaupa Set Eiga vélarnar framhaldslíf? Þróar frumlyf gegn alvarlegum fylgikvillum meðferðar Pistlar » Sigurður Már Jónsson Baðlónum drekkt með skattheimtu Sigurður Már Jónsson Skáldaraunir, pólitík og verðlaun Fleira áhugavert Algerlega óljóst hver tók ákvörðunina Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi Fósturforeldri á Suðurnesjum til rannsóknar Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Var skárri en ekkert fyrir neytendur AGRD Partners fjárfesti í BBA//Fjeldco Kaup Styrkáss á Gallon fá grænt ljós Frumkvæðið frá einkageiranum Karen Björk ráðin til Rastar Fyrrverandi stjórnendur Símans kaupa Set Gengi Icelandair lækkar í skugga kjaradeilu Þrotabúið fær ávinning af Möltudæminu Spá 4,9% verðbólgu í maí Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Fyrrverandi stjórnendur Símans kaupa Set Þrotabúið fær ávinning af Möltudæminu Karen Björk ráðin til Rastar Spá 4,9% verðbólgu í maí Gengi Icelandair lækkar í skugga kjaradeilu Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Kvikumenn fá ekki að áfrýja og verða að greiða tekjuskatt Sjálfbærni er góð fyrir viðskiptin Frumkvæðið frá einkageiranum Framkoman situr lengi í fólki Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Pálmi ráðinn framkvæmdastjóri Norðmenn fyrstir á meginlandi Evrópu til að hækka Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Framkoman situr lengi í fólki Lýður kaupir fyrir milljarða í Kviku banka Fyrrverandi stjórnendur Símans kaupa Set Eiga vélarnar framhaldslíf? Þróar frumlyf gegn alvarlegum fylgikvillum meðferðar