Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Tengdasti alþjóð­legi ráðningaraðili Ís­lands

Read Full Article →

Alan Wayne , stofnandi Rétt Fólk í Vinnu hefur um árabil tengt Ísland við umheiminn með því að útvega bæði innlent og erlent starfsfólk fyrir ýmis fyrirtæki sem þurfa á hæfileikaríku fólki að halda. Megintilgangur fyrirtækisins er að laða til landsins hæfustu og menntuðustu einstaklinga sem völ er á ásamt því að útvega erlendum fyrirtækjum, sem eru að hefja starfsemi á Íslandi, öflugt fólk þvert á atvinnugreinar. Alan stofnaði ráðningarfyrirtækið Rétt Fólk í Vinna ehf. árið 2019 og hefur síðan þá unnið með nokkrum af stærstu fyrirtækjum landsins, þar á meðal lyfjafyrirtækjum og verkefnastjórnunarfyrirtækjum í byggingariðnaði. Hann vinnur í nánu samstarfi við tæplega 1.500 ráðningaraðila um allan heim sem gerir hann að tengdasta alþjóðlega ráðningaraðila Íslands. „Allir þeir ráðningaraðilar sem ég vinn með eru rótgrónir og traustir. Ég flyt bæði erlent starfsfólk til Íslands og get jafnframt gefið Íslendingum með menntun og reynslu ný tækifæri á erlendri grund, hvort sem um ræðir Bandaríkin, Ástralíu eða Nýja-Sjáland.“ Fyrirtækið hans hefur nýlega tryggt sér stóran samning við erlent fyrirtæki sem hefur áhuga á því að koma sér inn á íslenskan markað. Samstarfið hefst núna eftir helgi með viðtölum við íslenska verkefnastjóra innan byggingariðnaðarins. „Ég geri ráð fyrir að fyrirtækið muni vaxa á næstu mánuðum og að ég muni ráða fleiri ráðningaraðila. Starfsemin nær einnig til heilbrigðisgeirans, upplýsingatækni, gervigreindar og fleiri sviða. Ég hef þar að auki verið í viðræðum við fjármálastjóra í Bandaríkjunum, innan fyrirtækis sem er með yfir 1,6 milljarða dala veltu, sem hyggst flytja til Íslands. Sá maður hefur mikla reynslu í orku- og heilbrigðismálum og hefur þegar keypt hús á Íslandi.“ Frá fiskvinnslu til ráðningargeirans Alan flutti til Íslands fyrir mörgum árum til að starfa í fiskvinnslu en árið 2005 byrjaði hann að vinna í ráðningargeiranum á „villta vestri tímanum“ eins og hann kallar það, þar sem reglugerðir innan geirans voru frekar óljósar. Hann byggði fljótlega upp sterkt orðspor og tengslanet og fær í dag mikið af sínum verkefnum í gegnum meðmæli. Fyrirtækið hans var jafnframt fyrsta ráðningarfyrirtækið til að flytja erlenda lyfjafræðinga til landsins til að starfa í íslenskum apótekum og ílengjast um 90% af öllu starfsfólki sem fer í gegnum stofuna hans á Íslandi í minnst tvö ár. „Ég nýt þess að hafa allan heiminn sem samstarfsaðila. Það skiptir mig öllu máli að finna réttan einstakling í hvert starf og ef það gengur ekki upp, þá einfaldlega útvega ég nýjan aðila ókeypis.“ Ísland þarf að opnast meira Heimsfaraldur skall á aðeins einu ári eftir að Alan stofnaði fyrirtækið sitt en í stað þess að hörfa nýtti Alan tímann til að hafa samband við fjölda fyrirtækja og byggja upp tengslanet sitt. Hann segist einnig leggja ríka áherslu á að starfa í nánu samstarfi við alþjóðlegt net ráðningaraðila. „Segjum sem svo að fyrirtæki þitt sé að hefja starfsemi í nýju landi án tengsla, þá skiptir þetta net sem ég hef sköpum. Við getum fundið og tryggt rétt starfsfólk fyrir þig með hröðum og öruggum hætti.“ Að mati Alans er traust jafnframt stærsti þátturinn í starfseminni og segir telur hann helsta vandamálið á Íslandi vera yfirferð þegar kemur að umsækjendum. „Þegar kemur að mínu tengslaneti eru allir vandlega skoðaðir og tryggðir.“ Næsta skref ráðningarskrifstofunnar verður að sinna verkefnum sem tengjast tækninýjungum, til að mynda gagnaverum, auk þess að útvega verkfræðinga og sérfræðinga innan tæknibyggingargeirans. „Ísland þarf að opnast meira vegna þess að heimurinn er að breytast og það er rík þörf á besta fólki frá öllum heimshornum. Í framtíðinni gætum við til dæmis séð gagnaver á stærð við álverið í Straumsvík rísa hér og þá verður lykilatriði að fá réttan mannauð.“

Share this article