Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Björgvin Páll: „Vil finna meira fyrir því að hann sé að henda mér út“

Read Full Article →

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Svíþjóð í tveimur æfingaleikjum hér heima 19. og 21. mars. Björgvin Páll Gústavsson segir leikina spennandi, mótherjarnir séu sterkir og búist er við troðfullum Hlíðarenda og Kaplakrika en þar fara leikirnir fram. Björgvin er einn af þremur markvörðum í hópnum sem tilkynntur var í gær en auk hans og Viktors Gísla Hallgrímssonar er Ísak Steinsson í hópnum. Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, er spenntur fyrir komandi leikjum gegn Svíum. Ísak Steinsson er einn af þremur markvörðum í hópnum fyrir leikina og Björgvin vill að hann láti finna fyrir sér. Ísak spilaði sinni fyrsta A-landsleik fyrir Ísland fyrir ári síðan en hann er 20 ára gamall. Björgvin er 41 árs en þó alls ekki hættur, en hvað vill hann sjá frá mögulegum arftaka sínum, á einhverjum tímapunkti? „Bara sama og hann kom með síðast, það er góð orka í honum. Hann er sprækur markmaður og hann er að þroskast mjög hratt á stuttum tíma,“ segir Björgvin. Hann segir Ísak einn okkar efnilegasta markmann og að hann hafi sýnt það með félagsliði sínu Drammen í Noregi undanfarið. „Ég bara býst við því að hann kannski aðeins, að ég finni meira fyrir því að hann sé að henda mér út,“ bætir Björgvin léttur við. Á blaðamannafundi HSÍ í gær var dagskrá landsliðsins næstu mánuði tilkynnt en fram undan eru æfingaleikir við Egypta í maí og janúar og svo spilar liðið í undankeppni EM í nóvember. Það er ekki oft sem dagskráin liggur fyrir með svona miklum fyrirvara. „Það er mjög skrítið, það eru bara komnar upp máltíðir og hvenær maður borðar og hvenær maður sefur.“ Þó það sé langt í mánuðum talið í næsta stórmót, HM í janúar, þá er stutt í það í leikjum talið og það segir Björgvin vera þægilegt.

Share this article