Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Veit að gagnrýnin kemur frá góðum stað en öllu má ofgera

Read Full Article →

Björgvin Páll Gústavsson, aldursforseti íslenska karlalandsliðsins í handbolta, birti nýlega færslu á Instagram-síðu sinni þar sem hann fór yfir fúkyrðaflaum netverja um sjálfan sig á meðan á EM í handbolta stóð yfir. Hann segir að þrátt fyrir að hann hafi ekki spilað meira á mótinu hafi gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri, nokkuð sem hann segist elska en veit að leikmenn taki misvel. Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason ræddu við Björgvin í Morgunútvarpinu á Rás 2 um nýliðið stórmót og hugarástand hans. Nú er hann í nýju hlutverki sem hann reynir að fara vel með en þykir oft krefjandi. Kom svolítið tómur heim þrátt fyrir góðan árangur Evrópumeistaramótið var mikil rússíbanareið fyrir íslenska karlalandsliðið og kemur Björgvin heim með blendnar tilfinningar þrátt fyrir frábæran árangur sem skilaði þeim í fjórða sætið. „Ég þarf oft að losa mig við hlutina og geri það oft fyrir sjálfan mig með því að skrifa þá niður.“ „Á einhverjum tímapunkti vil ég deila þeim með öðrum, sem er oft bara hollt fyrir mig líka, og loka mótinu. Þetta var mikill rússíbani og maður kemur heim smá tómur líka. Því manni á að líða rosalega vel með árangurinn en alltaf vill maður samt meira.“ Það hafi líka spilað inn í andlega líðan þeirra hvernig mótið þróaðist. Þeir byrjuðu af krafti, unnu riðilinn en voru síðan næstum því dottnir út á miðju móti og voru búnir að sætta sig við það. „Svo er okkur gefin líflína sem við þiggjum og það gengur vel. Svo koma undanúrslit sem er stórkostlegt en þau fara ekki sem vill.“ Þetta sé langur tími og margt sem gerist á slíku móti. Það séu svefnlausar nætur og spilað annan hvern dag og langar stundir með sjálfum sér inni á hótelherbergi. Þegar hann komi heim þurfi hann að gera upp þennan tíma. Stórmót 80% þjáning Björgvin kom fyrst inn í landsliðið árið 2003, þá átján ára, og var eftirminnilega hluti af þeim hópi sem fékk silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008. Hann hefur spilað á fjölmörgum stórmótum og segir þau öll taka jafn mikið á andlega þótt líkaminn geti verið í misgóðu standi. Svo komi leikmenn heim og fái lífið í andlitið eftir mánuð af adrenalíni. „Stórmót eru 80% þjáning.“ Skilur að viðbrögðin komi frá góðum stað en öllu má ofgera Í Instagram-færslu sinni skrifaði Björgvin að þrátt fyrir fáar spilaðar mínútur af sinni hálfu hafi gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri. „Það er náttúrlega bara meiri tækni og fleiri miðlar, allavega síðan 2008. Ég held að Facebook hafi varla verið til þegar ég fór á fyrsta mótið mitt, sem var kannski bara hollt fyrir ungan mig.“ Hann segist skilja hvaðan þessi hörðu viðbrögð komi og þau séu yfirleitt frá fallegum stað. „Það eru miklar tilfinningar og þetta skiptir fólk máli. Þú getur ekki bara fengið lofið, verður líka að taka við lastinu.“ „En öllu má ofgera líka og gagnrýni má alveg vera aðeins faglegri, oft og tíðum.“ Erfitt að svara gagnrýninni á vellinum sem varamaður Hann segir marga leikmenn ákveða að fara á stórmót og kíkja ekki á samfélagsmiðla og hvað fólk sé að skrifa um sig. „Ég er þannig skringilega víraður að ég verð einhvern veginn að skoða þetta og mig langar að skoða þetta. Yfirleitt þegar það gengur illa þá skoða ég meira.“ Hann segir neikvæða gagnrýni oft kveikja í sér því þá vilji hann sanna fyrir öðrum hvað í honum búi. „Ég hef frá því ég var barn ekki verið með réttu spilin á höndunum og þurfti að berjast fyrir mínu.“ „Þegar ég fæ gagnrýni þá vil ég svara henni inni á vellinum. Kannski vandamálið núna er að ég svara henni ekkert voðalega mikið inni á vellinum. Ég var meira í stuðningshlutverki við Viktor. Það er kannski erfiðara að losa um orkuna á svona móti.“ Ekki sami síðhærði egóistinn lengur Björgvin hefur nú spilað með landsliðinu í 24 ár og hefur þurft að horfast í augu við það að hann sé ekki sá leikmaður sem hann eitt sinn var. „Ég hef farið í gegnum svolítið mikið ferli með sjálfum mér. Ég er ekki sami síðhærði egóistinn og þegar ég mætti fyrst 18 ára. Ég þarf líka að kyngja ákveðnu stolti.“ Hann hafi verið í silfurliðinu en nú sé hann í öðru hlutverki sem hann þurfi líka að fara vel með. „Við erum sem dæmi með Viktor Gísla sem er einn besti markmaður heims og ég þarf að styðja. Mitt hlutverk breytist bara og ég þarf að passa að egóið verði ekki of stórt hjá mér og fari ekki að flækjast fyrir mér.“ „En á sama tíma þarf ég líka að átta mig á því að þegar ég kem inn þá verð ég að gera gagn. Ég get ekki bara verið í stuðningshlutverki heldur. Það getur verið svolítið erfitt að djöggla þessu. Ég reyni kannski að gefa meira af mér utan vallar heldur en inni, vera leiðtogi.“ Þjóðþekktir einstaklingar sem skrifa harða gagnrýni Í landsliðinu eru þónokkrir leikmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref á ferlinum, verandi 18-20 ára, og Björgvini finnst hann bera ábyrgð á að styðja þá. „Partur af því er að vera fyrirmynd og sýna fólki að það eru gaurar þarna sem eru ekki 41 árs og þetta fær kannski bara á þá,“ segir hann um gagnrýnina. Það sé hluti af því að vera í landsliðinu að takast á við pressuna sem því fylgir að svona orð hafi misjöfn áhrif á leikmenn. „Þetta eru fjölskyldufeður og þjóðþekktir einstaklingar sem skrifa þetta. Bara fólk sem maður þekkir, tónlistarmenn í okkar lífi sem eru að skrifa þetta.“ „Oft í hugsanaleysi líka og í látum og geðshræringu. Það er fegurðin við þetta. Þetta skiptir okkur öll svo miklu máli þannig ég veit að þetta kemur frá fallegum stað. Þetta er íslenskt.“ Börnin farin að taka eftir gagnrýninni Hann er fjögurra barna faðir og segir elstu börnin sín vera farin að taka eftir gagnrýninni sem hann fái á Internetinu. „Mitt vandamál er kannski líka að ég fer að skoða þessa miðla og tek myndir á símann og þá erum við með sameiginlegt fjölskyldualbúm þannig að þau sjá þetta allt saman. Það eru kannski mín mistök líka.“ Hann telur þetta þó mögulega vera hluta af þroskaferli fyrir þau, að sjá hvernig fólk getur hagað sér og hvað fylgir því að vera þekktur einstaklingur. Það sé ekki bara frábært heldur fylgi því gagnrýni sem maður þurfi að taka, hvort sem hún sé óvægin eða ósanngjörn. „Þú getur ekki bara fengið hype-ið.“ „Þetta er erfiður skóli ef þú ætlar að fara þessa leið, hvort sem það eru íþróttir eða eitthvað annað. Þú munt alltaf fá skerminn á þig og kannski læra þau eitthvað í gegnum mig fyrir framtíðina.“ Veit ekki hve mikið hann á eftir og ætlar að njóta Björgvin segist enn vera að læra inn á breytt hlutverk. Hann hafi verið fyrsti markmaður nánast allan sinn feril, bæði hjá landsliðinu og í atvinnumennsku, og það hafi verið erfitt að stíga til baka, sérstaklega þar sem hann sé í huganum enn þá jafn ungur og hraustur. „Það er virkilega krefjandi, sérstaklega eftir leiki því þú vilt geta sagt: Ég lagði allt í þetta og gaf allt sem ég átti og skildi eftir á vellinum. En svo fékkstu kannski bara tvö skot á þig. Það er erfitt líka.“ „Hausinn á manni er á allt öðrum stað heldur en líkaminn. Þó líkaminn sé eitthvað farinn að hrörna og hægja á sér þá er hausinn aldrei þar. Það er ekki fyrr en maður sér vídjó af sér í sjónvarpinu og sér að ég er ekki alveg 18 ára.“ Hann segist þó snemma hafa farið að hugsa fyrir endanum á ferlinum, hvað hann ætlaði að gera þegar honum lyki. Hann hefur skrifað bækur, haldið fyrirlestra og gegnt stöðu markaðsstjóra. Fyrir tæpu ári ákvað hann þó að leggja allt annað til hliðar og einbeita sér að handboltanum því hann veit ekki hve mikið hann á eftir. Það sé forréttindastaða að vera í landsliðinu sem ekki allir fái að upplifa, að standa á vellinum fyrir leik og hlusta á þjóðsönginn sé einstök stund. „Að fá að upplifa það 297 sinnum hingað til, það eru forréttindi.“ „Ég þori ekki að hugsa lengra akkúrat núna. Ég hef enn þá gaman af þessu,“ segir Björgvin sem enn hefur mikla ástríðu fyrir leiknum. „Það gæti verið mánuður í viðbót eða tíu ár.“ Björgvin Páll markvörður segir gagnrýnina aldrei hafa verið jafn mikla og á nýliðnu Evrópumeistaramóti. Þó hann nýti gagnrýnina til góðs taki aðrir leikmenn misvel í hörð orð. Nú er hann í nýju hlutverki sem getur verið krefjandi. Rætt var við Björgvin Pál Gústavsson í Morgunútvarpinu á Rás 2. Viðtalið má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

Share this article