Færeyingar fagna ákaft í kvöld því karlalandslið þeirra í handbolta er komið á heimsmeistaramót í fyrsta sinn. Liðið verður meðal þátttökuþjóða á HM 2027 eftir að hafa lagt Bosníu í tveggja leikja einvígi. Karlalandsliðið fór á stórmót í fyrsta sinn á EM 2024 og var einnig með á EM 2026. Kvennalandsliðið komst á EM 2024 og svo á HM 2025. Færeyingar og stuðningsmenn þeirra hafa sett mikinn svip á þessi mót. Ísland er nú þegar með þátttökurétt á mótinu vegna árangurs á EM 2026. Engin Skipagata — ekkert vandamál Þeirra besti maður, Elias Ellefsen á Skipagøtu, var ekki með liðinu í leikjunum en það sakaði ekki. Hákun West af Teigum leiddi sóknarleikinn með ellefu mörk. Seinni leikurinn fór fram í þjóðarhöllinni við Tjarnir á Þórshöfn og vannst hann 24-22 og einvígið samanlagt 57-50.