Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í gær að ganga frá leigusamningi á 900 fermetra aðstöðu í Smáralind til að reka þar bókasafn og menningarþjónustu. Einnig var ákveðið að leggja 175 fermetra undir bókasafn í Kórnum. Miklar deilur voru í bæjarstjórn við afgreiðsluna og bókuðu meirihluti og minnihluti fram og til baka um afstöðu sína. Segja stefnunni gjörbreytt á lokaspretti kjörtímabils Minnihlutinn undraðist að áformum um uppbyggingu menningarmiðstöðvar fyrir íbúa efri byggða hefði verið skotið á frest og þess í stað gengið til samninga við Heima, eigendur Smáralindar. Þarna væri verið að skuldbinda bæinn til greiðslu meira en milljarðs króna á tíu ára leigutíma án þess að bæjarfulltrúar fengju nauðsynlegar upplýsingar. „Tillagan sem nú hefur verið kynnt er gjörbylting á fyrirliggjandi stefnu og fyrirheitum. Hún felur í sér að allri framkvæmd í efri byggðum verður skotið á frest til 2029. Þess í stað á Smáralindin, sem er vestan Reykjanesbrautar, að þjóna hlutverki menningarmiðstöðvar fyrir efri byggðir.“ Mikilvægt að hraða uppbyggingu Meirihlutinn hafnaði orðum minnihlutans um að ekki lægju fyrir nægar upplýsingar um samninginn og fjárhagslegar forsendur menningar- og bókasafnsþjónustu í Kópavogi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sögðu mikilvægt að hraða uppbyggingu menningar- og bókasafnsþjónustu sem íbúar efri byggða hafi beðið eftir um árabil. „Traustur rekstur bæjarins undanfarin ár gerir bænum kleift að ráðast í þessa metnaðarfullu uppbyggingu sem mun efla menningu, mannlíf og samfélagið í heild.“ Skýr birtingarmynd valdhroka Að loknu hálftíma fundarhléi bókaði minnihlutinn enn um andstöðu sína og sagði að fulltrúar meirihlutans hefðu bersýnilega haft meiri upplýsingar undir höndum en fulltrúar minnihlutans. „Þegar beiðni um eðlilegan frest til að afla upplýsinga sem gera okkur kleift að taka upplýsta afstöðu er hafnað er það skýr birtingarmynd um valdhrokann sem einkennir störf meirihlutans,“ bókuðu fulltrúar minnihlutans og sögðu það yfirgang af hálfu meirihlutans að knýja málið áfram við slíkar aðstæður á lokaspretti kjörtímabilsins. Ábyrgt að ákveða frekar en að fresta Þessu svaraði meirihlutinn með annarri bókun og sagði málið allt hafa verið í eðlilegu stjórnsýsluferli og að fyrir lægju fullnægjandi upplýsingar til ákvarðanatöku. Það væri ábyrgð að taka ákvarðanir í stað þess að fresta verkefnum sem miðuðu að því að bæta þjónustu við íbúa. Loforð meirihlutans um að tryggja að upplýsingum um framgang verkefnanna yrði reglulega skilað til bæjarráðs dugði ekki til að sefja áhyggjur minnihlutans sem bókaði á móti. „Fyrirheitin um reglulega upplýsingagjöf til að gera bæjarráði kleift að sinna eftirlitshlutverki sínu hafa ekki gengið eftir allt þetta kjörtímabil. Hvers vegna ætti að búast við öðru í þessu tilviki?“ Að því loknu var gengið til atkvæða og tillögurnar um menningarmiðstöðvar í efri byggðum og Smáralind samþykktar með sex atkvæðum meirihlutans gegn fimm atkvæðum minnihlutans.