Innlent | mbl | 11.3.2026 | 16:55 Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir gagnrýni minnihlutans á uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind vera ódýra pólitík. Þá fari oddviti Viðreisnar í Kópavogi með rangt mál í fjölmiðlum. Kópavogsbær og Heimar hafa undirritað samning um uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind. Áætluð opnun er vorið 2027. Um er að ræða framsýna hugsun „á sviði menningarmála þar sem fléttast saman nútímabókasafn í bland við menningarupplifun og fjölbreytta þjónustu“, að því er segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Frétt af mbl.is Deilt um nýja menningarmiðstöð í Kópavogi „Ódýr pólitík“ Theodóra S. Þorsteinsdóttir, oddviti Viðreisnar í Kópavogi, hefur gagnrýnt afgreiðslu málsins í aðsendri grein á Vísi í dag þar sem meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs er m.a. sakaður um valdhroka og skæting. Í grein sinni segir Theodóra samninginn hljóða upp á 1,5 milljarða króna fyrir 10 ára leigu. Ásdís segir að þar sé bæjarfulltrúinn að blanda saman heildarrekstrarkostnaði eins og launum starfsfólks og öllu sem því tilheyrir að reka menningarmiðstöð og bókasafn. „Þetta er afskaplega ódýr pólitík. Hér farið með rangt mál og öll fundargögn styðja það að þetta er áætlaður heildarrekstrarkostnaður og alls ekki heildarvirði leigusamningsins.“ segir Ásdís í samtali við mbl.is. „Loksins að mæta þörfum okkar íbúa“ Hún segir að samningurinn sé hagstæður fyrir Kópavogsbæ. „Í ljósi sérstöðu okkar sem sveitarfélags þá að sjálfsögðu tryggjum við það að við fáum hagstæðan samning. Hann er sambærilegur því sem gengur og gerist í rekstri annarra stofnana hjá okkur.“ Segir bæjarstjórinn að verið sé að boða til framfaraskrefs fyrir börn, ungmenni og eldri borgara bæjarfélagsins. „Það er búið að vera mikið ákall í Kópavogi um að byggja upp menningarinnviði og bókasafn, bæði í efri byggðum Kópavogs og í kringum Smáralindina. Það er ofboðslega mikil uppbygging fram undan á þessum svæðum og við erum loksins að mæta þörfum okkar íbúa. Þetta er klárlega til þess fallið að efla menningarstarfið í Kópavogi og síðast en ekki síst er þetta auðvitað gríðarlega mikilvægt á tímum nú þegar við erum einmitt að ræða það að við þurfum að efla lestur barna og ungmenna. Við erum með þessu að tryggja aðgengi okkar íbúa að bókum og nýrri menningarupplifun.“ segir Ásdís að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Serbía - Ísland, staðan er 0:0 Bayer Leverkusen – Arsenal kl. 17.45, bein lýsing Ferðamenn lentu á kafi í vatni Íslendingurinn ósigraður á atvinnumannaferlinum Vara við árásir á hafnir við Hormússund Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja aukið samstarf í varnarmálum Virða ber eignarrétt landeigenda Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Serbía - Ísland, staðan er 0:0 Bayer Leverkusen – Arsenal kl. 17.45, bein lýsing Ferðamenn lentu á kafi í vatni Íslendingurinn ósigraður á atvinnumannaferlinum Vara við árásir á hafnir við Hormússund Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Segja víðtækar árásir hafnar Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason