Innlent | mbl | 11.3.2026 | 14:39 Deilt um nýja menningarmiðstöð í Kópavogi Fulltrúar menningar, forstjóri Heima og fulltrúar meirihluta f.v.: Sigurlaug Jóna Hannesdóttir, útibússtjóri í Lindasafni, Védís Hervör Árnadóttir, umbóta- og þróunarstjóri, Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, Orri Vignir Hlöðversson formaður bæjarráðs, Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála, Elísabet Sveinsdóttir, formaður menningar- og mannlífsnefndar. Ljósmynd/Kópavogsbær Setja bókamerki Kópavogsbær og Heimar hafa undirritað samning um uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind. Áætluð opnun er vorið 2027. Í aðsendri grein oddvita Viðreisnar í Kópavogi segir að bærinn muni greiða um 1,5 milljarð króna á samningstímanum sem nær yfir 10 ár. Þar segir jafnframt að hann sé óuppsegjanlegur. Framsýn hugsun á sviði menningarmála Í tilkynningu á vef bæjarins segir að verkefnið sé þróað af bænum í samstarfi við Heima. Um sé að ræða framsýna hugsun „á sviði menningarmála þar sem fléttast saman nútímabókasafn í bland við menningarupplifun og fjölbreytta þjónustu“. Þá sé verkefnið hluti af stærri þróun menningarinnviða bæjarins sem bæjarstjórn samþykkti í gær. Felur hún í sér að tveir nýir menningarkjarnar rísi, annars vegar í Smáralind og hins vegar í Kórnum. Gríðarlega mikilvægt þegar dregið hefur úr lestri barna Haft er eftir Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra í tilkynningunni að menningarmiðstöðin muni efla starfsemi bókasafnsins í Hamraborg enn frekar. „Menningarmiðstöð í Smáralind og nýtt bókasafn í efri byggðum þýðir líka bætt aðgengi íbúa að bókum, sem er gríðarlega mikilvægt á tímum þar sem dregið hefur úr lestri barna og ungmenna. Þá hefur uppbygging íbúða og þjónustu í Smárahverfi undanfarin ár stutt við svæðið sem annan af tveimur miðpunktum bæjarins og mikilvægt að menningin eigi þar samastað,“ er haft eftir Ásdísi. Segir athugasemdum mætt með skætingi Theodóra S. Þorsteinsdóttir, oddviti Viðreisnar, gagnrýnir afgreiðslu málsins í aðsendri grein á Vísi í dag. Þar bendir hún á að ekki hafi verið gert ráð fyrir „þessu Smáralindarævintýri“ í fjárhagsáætlunum bæjarins. „Það var reyndar ekki vinsælt að fjalla um fjármálin í bæjarstjórn. Við þóttum púkaleg að skemma stemninguna fyrir þessari flippuðu hugmynd, eins og þau orðuðu hana sjálf,“ ritar hún á Vísi. „Okkur var auðvitað hafnað um frest, en mig langaði t.d. að spyrja skólasamfélagið í Kópavogi, stjórnendur og kennara, hvort þetta væri skynsamlegasta forgangsröðunin á fjármagni að opna bókasafn í Smáralind til þess að styðja við læsisáætlanir? Mig langaði að taka opna umræðu um það hvort það væri hlutverk Kópavogsbæjar að reka Vetrargarðinn í Smáralind fyrir Heima og borga fyrir það á annað hundrað milljónir á ári? Öllum athugasemdum fulltrúa utan meirihlutans var mætt með skætingi.“ Skiptust á bókunum Í fundargerð Kópavogsbæjar frá fundi bæjarstjórnar í gær skiptast fulltrúar meirihluta og minnihluta á að leggja fram bókanir vegna málsins. Minnihlutinn taldi nauðsynlegt að fá frekari upplýsingar í ljósi þess að samningurinn við Smáralindina fæli í sér miklar fjárbindingar og óskaði eindregið eftir fresti til að kanna málið betur, m.a. með það í huga hvort aðrir aðilar á sama svæði hafi hug á að bjóða bænum aðstöðu. „T.d. er áætlun um rekstrarkostnað alls ekki undirbyggð. Ljóst þarf að vera hvaða raunverulegur stofn- og rekstrarkostnaður fylgi samningum um menningarstarfsemi Kópavogsbæjar á nýjum stað. Enginn rökstuðningur er fyrir því af hverju tímabært er að leggja í þessa fjárfestingu og opna aðstöðu í Smáralind áður en bókasafn í efri byggðum getur orðið að raunveruleika.“ Fulltrúar meirihlutans svöruðu og sögðu um einstakt tækifæri að ræða. „Fram undan er fjölgun íbúa á svæðinu og mikilvægt að mæta þörfum þeirra. Að mati meirihlutans eru undirliggjandi gögn bæði vel ígrunduð og faglega fram sett af starfsmönnum bæjarins. Meirihlutinn sér því ekki tilefni til annars en að styðja í einu og öllu afgreiðslu Menningar- og mannlífsnefndar sem var samþykkt samhljóða,“ sagði í bókun meirihlutans. Valdhroki og yfirgangur Minnihlutinn sakaði þá fulltrúa meirihlutans um valdhroka og yfirgang með því að neita minnihlutanum um „eðlilegan frest til að kynna sér stórmál með fullnægjandi hætti“. „Rangar áherslur felast í forgangsröðuninni sem meirihlutinn leggur til. Með henni verður aðstaða í Smáralind, sem hvorki var rædd í aðdraganda kosninga né eftir þær, forgangsmál og opnuð 2027 en aðstaða í efri byggðum sem allir hafa verið sameinaðir um bíður til 2029. Sú röðun er m.a.s. í hróplegu ósamræmi við málefnasamning meirihlutans þar sem segir að stuðla skuli að því að menningakjarnar verði starfræktir í efri byggðum samhliða þungamiðju starfseminnar við Hamraborg og MEKÓ,“ segir í bókun fulltrúa minnihlutans. Meirihlutinn vísaði ásökununum á bug og sagðist vinna út frá einróma samþykkt Menningar- og mannlífsnefndar. „Ákvörðunin er algjörlega í samræmi við málefnasamning meirihluta enda er með henni verið að stuðla að því að menningarkjarni verði starfræktur í efri byggðum. Skipulagsferlið er fram undan og allt kapp verður lagt á að flýta þeirri vinnu þannig að hægt verði að opna menningarkjarna í Kórnum fyrir 2029. Hér er því stigið stórt skref í átt að enn blómlegra menningarlífi í Kópavogi.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Deilt um nýja menningarmiðstöð í Kópavogi Útilokar þátttöku Írans á HM Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Stefán Vagn nýr þingflokksformaður Giant halibut landed: “The largest I’ve ever received” Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Deilt um nýja menningarmiðstöð í Kópavogi Útilokar þátttöku Írans á HM Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Stefán Vagn nýr þingflokksformaður Giant halibut landed: “The largest I’ve ever received” Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Vilja aukið samstarf í varnarmálum Æðsti leiðtogi Írans heill á húfi Hækkandi verð á áburði vegna stríðs Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason