Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stöðvarskyldan dýrkeypt fyrir einyrkja á landsbyggð og stefnir í að leigubílar hverfi

Read Full Article →

Leigubílstjóri á Egilsstöðum sér fram á að hætta störfum þegar skylt verður að starfa á leigubílastöð. Kostnaðurinn við það sé of mikill fyrir þá túra sem bjóðast einyrkjum úti á landi. „Það eru nýju leigubílalögin sem eru svolítið að pirra mig þessa dagana. Þau taka gildi núna fyrsta júní og það stefnir allt í það að maður missi þessa atvinnu, sem er ekki gott. Ég er búinn að stunda þetta síðan 1991 en nú þarf víst að vera á stöð samkvæmt nýju lögunum,“ segir Jón Eiður Jónsson leigubílstjóri á Egilsstöðum. Hann er nýlega búinn að fjárfesta; endurnýjaði bílinn í sumar og hann hefur verið með rakningakerfi í bílnum. En það að skrá sig á stöð myndi stórauka allan kostnað. „Það er bara ekki hægt úti á landi“ „Ég sem einyrki er bara ekkert að ná því sem það kostar á mánuði. Það er mánaðargjald á stöðvunum sem getur verið vel yfir 150 þúsund og síðan er allur tölvubúnaður sem fylgir því að vera á stöð í bílunum og á stöðinni sjálfri, mannskapur sem skráir þá í tölvu túra og annað slíkt. Það er bara ekki hægt úti á landi. Það er erfitt að eiga við þetta og mér sýnist þetta verða þannig að það verði engin þjónusta með leigubíla á Austurlandi eða bara hjá þessum einyrkjum,“ segir Jón Eiður. Hann vill fá laun í líkingu við kerfið sem var fyrir árið 2003. „Þá máttum við keyra án stöðvar en með öll leyfi og réttindi í lagi. Þá var það bara í góðu lagi.“ Veturnir yfirleitt steindauðir Hann segir aðstæður einyrkja í leigubílaakstri aðrar þar sem þetta sé ekki nógu mikill bissness til að standa undir miklum föstum útgjöldum. Veturnir eru yfirleitt steindauðir en það eru smá uppgrip á sumrin í sambandi við skip og annað slíkt og ferðamenn bara. Þeir verða bara að finna sér aðrar leiðir. Þannig að það verður erfitt að eiga við þetta,“ segir Jón Eiður Jónsson, leigubílstjóri til 35 ára.

Share this article