Innlent | Morgunblaðið | 9.3.2026 | 14:32 Stöðugleikareglan ekki hert á þessu ári Daði Már Kristófersson er ánægður með stöðugleikaregluna en ætlar að skoða hana vandlega við næstu endurskoðun lagabálksins. mbl.is/Eggert Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Hitafundur í þinginu í dag Íslenska mest töff tungumál í heimi Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Ráðherra kallaði eftir afsökunarbeiðni þingmanns „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ » Fleiri tengdar fréttir Ólíklegt er að stöðugleikareglan verði endurskoðuð á þessu ári að sögn Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra. Hann hefur ekki áhyggjur af að freistnivandi felist í því að sjálfvirkar hækkanir á bótum almannatrygginga muni standa utan stöðugleikareglunnar. Í stöðugleikareglunni felst að undirliggjandi útgjöld A1-hluta ríkissjóðs megi vaxa að hámarki um 2,0% að raunvirði á ári áður en tekið er tillit til breytinga í tekjuöflun ríkissjóðs. Reglan leysti eldri afkomureglu af hólmi, en sú regla kvað á um að heildarafkoma hins opinbera yfir fimm ár væri að minnsta kosti í jafnvægi. Báðar reglur miða að sjálfbærni reksturs ríkissjóðs en stöðugleikareglan, eins og nafnið felur í sér, setur stöðugleika einnig á oddinn þar sem reglan ýtir undir mótvægi við hagsveifluna (e. counter-cyclical). Hún dregur úr tilhneigingu til að verja hagsveiflutengdum tekjum í varanleg útgjöld en skapar að sama skapi aukið svigrúm til að styðja við hagkerfið í gegnum efnahagslegar niðursveiflur. Fram hefur komið sú gagnrýni á stöðugleikaregluna að hún sé „skattahækkanaregla“, þ.e. að hún hvetji til skattahækkana til þess að mæta útgjaldaaukningu. Þó að það sé rétt er það e.t.v. ekki sanngjörn gagnrýni, enda væri hægt að segja slíkt hið sama um afkomuregluna sem hún leysti af hólmi, nema að sú regla leyfði varanlega útgjaldaaukningu byggða á einskiptisbúhnykkjum, sem stöðugleikareglan leyfir ekki. Þá verður auðvitað að líta til þess að skuldaviðmið opinberra fjármála setur ríkissjóði að sama skapi skorður. Veikleiki stöðugleikareglunnar felst einkum í því að veigamiklir útgjaldaliðir eru henni undanskildir. Það eru fjárfestingar, vaxtagjöld, lífeyrisskuldbindingar, afskriftir skattkrafna og annarra tapaðra krafna, tjónabætur, útgjöld vegna meiriháttar náttúruhamfara, ríkisábyrgðir, framlög til Atvinnuleysistryggingasjóðs og framlög í Jöfnunarsjóð, en þessir liðir samsvara um fimmtungi ríkisútgjalda. Í flestu eru málefnaleg sjónarmið að baki því að undanskilja þessa liði reglunni en á hinn boginn hefur verið bent á að „meiriháttar náttúruhamfarir“ sé nokkuð opið til túlkunar og að náttúruhamfarir séu varla ófyrirséðir atburðir hér á landi. Þá hefur verið bent á að með fyrirhugaðri tengingu bóta almannatryggingakerfisins við launavísitölu muni hækkanir bóta standa utan stöðugleikareglunnar. Fjármálaráð, sem starfar skv. lögum um opinber fjármál, er á meðal þeirra sem gjalda varhug við því að hækkanir bóta almannatrygginga standi utan reglunnar. Fjármálaráð leggur hlutlægt mat á það hvort fjármálastefna og fjármálaáætlun ríkisins fylgi þeim grunngildum sem lög um opinber fjármál kveða á um að stefnumörkun í opinberum fjármálum skuli byggð á, þ.e. sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi. Í álitsgerð fjármálaráðs vegna fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar 2026-2030 segir: „Stöðugleikareglan setur nafnlaunahækkunum litlar skorður og þau geta því hækkað verulega svo fremi sem fjölgun stöðugilda og aðrar raunbreytingar útgjalda sé undir 2% hámarki reglunnar. Það er sérstaklega varhugavert í ljósi áforma ríkisstjórnar um að tengja upphæðir lífeyrisgreiðslna við launavísitölu, en þær eru undanskildar stöðugleikareglunni. Fjármálaráð telur þetta vera veikleika í útfærslu reglunnar sem ætti að skoða sérstaklega.“ Fjármálaráð leggur áherslu á að til þess að reglan virki þurfi hún að hafa fáar undantekningar og vera bindandi, en þurfi þó að gefa nægilegt svigrúm til þess að hægt sé að bregðast við ytri þróun með viðeigandi hætti. Ráðið bendir á að regla þar sem frávik frá reglunni er flutt á milli ára myndi tryggja slíkan sveigjanleika, en stöðugleikareglan kveður ekki á um slíkan flutning milli ára, þótt rekstur ríkissjóðs eitt árið fari fram úr reglunni. Þarf að skoða vandlega Spurður hvort ekki sé nauðsynlegt að endurskoða stöðugleikaregluna samhliða því að bætur almannatrygginga verði tengdar launavísitölu segir Daði Már það ekki standa til að svo stöddu. „Almennt séð er mikilvægt að stöðugleikareglan nái til eins stórs hluta ríkisfjármála og mögulegt er, en það er ekki hægt að láta hana ná til alls. Ég held að þetta sé eitt af því sem við þurfum að skoða vandlega þegar kemur að endurskoðun laga um opinber fjármál. En ég held að það verði nú tæplega á þessu ári,“ segir hann. Spurður hvort það komi til greina að lækka 2% viðmiðið á móti hækkununum segir Daði Már: „Við reiknum alltaf með þessum útgjöldum vegna þess að það er t.d. tekið tillit til þeirra í fjármálaáætlun.“ Hann telur ólíklegt að ríkið freistist til þess að fullnýta svigrúm reglunnar án tillits til bótahækkana. „Nei, það nefnilega held ég ekki og við þurfum að átta okkur á því að samkvæmt til dæmis gildandi fjármálaáætlun er stöðugleikareglan ekki bindandi fyrir fjárútlát næstu ára. Þar er það raunverulega skuldaviðmiðið og stefna okkar um hallalaus fjárlög sem verður bindandi skilyrðið. Við verðum langt innan stöðugleikareglunnar.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Alþingi Hitafundur í þinginu í dag Íslenska mest töff tungumál í heimi Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Ráðherra kallaði eftir afsökunarbeiðni þingmanns „Ekki hægt að „vippa upp 90 daga neyðarbirgðum“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Mikið áfall fyrir Liverpool Stöðugleikareglan ekki hert á þessu ári „Ég ólst upp við að steikja hamborgara í fjölskyldufyrirtækinu“ „Ég mun deyja, þannig er það“ Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Missti stjórn á bílnum vegna hálku Kröfur til nemenda á undanhaldi Alltof margir fengið rangar rukkanir Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Missti stjórn á bílnum vegna hálku Færð getur spillst hratt Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Beint: ESB-tillagan rædd á þinginu Mikið áfall fyrir Liverpool Stöðugleikareglan ekki hert á þessu ári „Ég ólst upp við að steikja hamborgara í fjölskyldufyrirtækinu“ „Ég mun deyja, þannig er það“ Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Missti stjórn á bílnum vegna hálku Hver er Mojtaba Khamenei? Minni væntingar, minni árangur Hitafundur í þinginu í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Farþegamiðstöðin komin með nafn Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Missti stjórn á bílnum vegna hálku Færð getur spillst hratt Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason