Innlent | mbl | 25.3.2026 | 15:35 Viðbrögð við verðhækkun ekki rædd sérstaklega Forsætisráðherra segir að möguleg viðbrögð við örri hækkun eldsneytisverðs og hugsanlegum skorti hafi ekki verið rædd sérstaklega á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Colourbox Setja bókamerki Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að möguleg viðbrögð við örri hækkun eldsneytisverðs og hugsanlegum skorti vegna stríðsátaka við Persaflóa hafi ekki verið rædd sérstaklega á ríkisstjórnarfundi í gærmorgun. Ríkisstjórnin fylgist þó mjög náið með þróun mála. Möguleg viðbrögð hafi verið rædd á fjölda ríkisstjórnarfunda og á síðustu tveimur vikum hafi minnisblöð verið kynnt frá bæði utanríkisráðherra og fjármálaráðherra varðandi stöðu mála. Frétt af mbl.is Hækkanir muni hafa veruleg áhrif Tilvist kílómetragjalds ekki rædd sérstaklega „Það er verið að setja aukinn kraft í samkeppnismál að hluta til út af þessu en líka almennt út af verðbólgu í landinu. Vegna þess að við vitum það alveg að við örar verðbreytingar á ákveðnum vörum þá getur skapast freisting til viðbótarálagningar. Ég vonast til þess að það verði ekki reyndin.“ Ráðherrann segir það ekki hafa verið rætt sérstaklega á þessum tímapunkti hvort komi til greina að fella niður kílómetragjaldið eða ámóta fari allt á versta veg. „Við verðum svolítið bara að taka stöðuna eftir því sem að horfur breytast. Það hefur verið rosalegt flökt á olíuverði, en ef að Hormússund opnast almennilega aftur, þá gæti þessi staða breyst mjög hratt, að því gefnu að mikilvægir innviðir verði ekki fyrir miklum skemmdum, en auðvitað höfum við áhyggjur af þessu.“ Frétt af mbl.is Forsendurnar riða til falls Fjármálaáætlun stærsta aðgerðin Kristrún kveður stærstu einstöku aðgerð ríkisstjórnarinnar vera fjármálaáætlun, sem kynnt verður á fimmtudag, og fjárlögin í haust. Segist hún ekki hrifin af þeirri hugmynd að farið verði í sérstaka kjarapakka út af ástandinu nema þá aðeins að þeir séu útgjaldatakmarkaðir. „Akkúrat núna þarf ekki að auka umsvif ríkisins, heldur þarf einmitt að tryggja að við völdum ekki verðbólgu,“ segir Kristrún en tiltekur að virkt samtal standi yfir við verkalýðshreyfinguna og að þjóðhagsráð hafi fundað nýlega og komi aftur saman eftir páska til þess m.a. að ræða fjármálaáætlun. „Ég hitti formenn stærstu aðildarfélaga verkalýðshreyfingarinnar ekki fyrir löngu, hef verið í samtali við framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins (SA) og fjármálaráðherra sömuleiðis. Þannig að við erum auðvitað að stilla saman strengi.“ Frétt af mbl.is Frysta þarf öll laun í landinu Halda plani og halda sjó Spurð hvort skattahækkanir séu til skoðunar, ef til vill í tengslum við kjarapakka eða ámóta líkt og kallað hefur verið eftir úr verkalýðshreyfingunni segir Kristrún fólk geta kallað hlutina það sem það vill. Ríkisstjórnin hafi fjármálaáætlun og pólitískt umboð til þess að leggja fram ákveðnar áherslur þar. Aðgerðir með pólitísku ívafi verða kynntar í tengslum við fjármálaáætlun á fimmtudag. Þar segir ráðherrann að breiðu línur ríkisstjórnarinnar verði að finna. „Auðvitað höfum við væntingar um að það sé eitthvað sem allur vinnumarkaðurinn – bæði atvinnurekendur og verkalýðshreyfing – sjái að sé skref í rétta átt.“ Kristrún kveðst telja að miklu máli skipti að halda plani og sjó varðandi það að halda afkomu ríkissjóðs réttum megin við núllið og að ríkisstjórnin hafi sterkt umboð til að ráðast í þær aðgerðir sem ráðist verður í. Frétt af mbl.is SA kallar enn eftir samráði stjórnvalda „Eins og ég segi og ég sagði í þinginu í gær, það er ekki plan þessarar ríkisstjórnar að leggja fram ófjármagnaða kjarapakka eins og síðasta ríkisstjórn gerði. Það er meðal annars ástæðan fyrir því að við erum í þeirri stöðu sem við erum í dag. En ég hef líka sagt að ég hef áhyggjur af launaskriði. Það var samið út frá ákveðnu marki á sínum tíma en það eru ekki þær tölur sem nú birtast í launavísitölu. Í staðinn fyrir að fara í bendingar þurfum við að velta því alvarlega fyrir okkur hvernig stendur á því að við erum í þeirri stöðu að laun eru að hækka, ekki bara á opinbera markaðnum heldur líka á almenna markaðnum í heild, um 10%, þrátt fyrir að það hafi verið samið um annað. Þetta eru einstakar ákvarðanir í stökum fyrirtækjum og í einhverjum tilvikum örugglega hjá hinu opinbera, einhverjir stofnanasamningar. Þetta eru allt hlutir sem við erum að rýna í og tökum alvarlega. Þetta er útbreitt í íslensku samfélagi.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ræddu samstarf Íslands og Indlands á alþjóðavettvangi Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Elín Klara næstmarkahæst allra Loka endurvinnslustöðvum Sorpu vegna veðurs Viðbrögð við verðhækkun ekki rædd sérstaklega Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Tókust á á fundi utanríkismálanefndar „Dýrt að sitja uppi með óseldar íbúðir“ „Það er allt undir í svona rannsókn“ Dró til tíðinda í sjónvarpsútsendingu Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri „Lognið á undan storminum“: Illviðri í kortunum Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Ræddu samstarf Íslands og Indlands á alþjóðavettvangi Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Elín Klara næstmarkahæst allra Loka endurvinnslustöðvum Sorpu vegna veðurs Viðbrögð við verðhækkun ekki rædd sérstaklega Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Dýrt að sitja uppi með óseldar íbúðir“ Loka Fjarðarheiði vegna erfiðra akstursskilyrða Tíðinda beðið eftir fundi með Friðriki Varari um sig og óttast um öryggi sitt Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Frysta þarf öll laun í landinu Varari um sig og óttast um öryggi sitt Óvíst um afdrif umsóknar Varað við vonskuveðri „Lognið á undan storminum“: Illviðri í kortunum Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl