Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Stöðugleikareglan er platregla“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.2.2026 | 22:55 „Stöðugleikareglan er platregla“ Tekist var á um stöðugleikaregluna í þinginu í dag. mbl.is/Samsett mynd Nokkur umræða spannst um stöðugleikareglu ríkisstjórnarinnar í þinginu í dag þegar fyrirspurn Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur þingmanns Miðflokksins þar að lútandi til Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra var borin upp í þinginu. Stöðugleikareglan felur það í sér að að útgjöld A1-hluta ríkissjóðs megi vaxa að hámarki um 2% að raunvirði milli ára áður en tekið er tillit til breytinga í tekjuöflun ríkissjóðs. Nanna Margrét benti á að fjöldi útgjaldaliða stendur utan við stöðugleikaregluna. Þá eigi við mat á hámarki raunvaxtar útgjalda hvers árs að taka tillit til áhrifa sérstakra ráðstafana í tekjuöflun ríkissjóðs til hækkunar og lækkunar. Frétt af mbl.is Létu viðvaranir sem vind um eyru þjóta Velti upp hvort ætlunin væri að fela útgjöld „Þarna byrja ég að hafa verulegar áhyggjur því að við höfum séð að stöðugleikareglan er hreinlega farin að ýta undir skattahækkanir. Það var varað við þessu og nú hefur komið í ljós að það er það sem gerist, að til að vera innan stöðugleikareglunnar, af því að við erum hér með ríkisstjórn sem getur ekki hamið útgjöld, þá voru skattar hækkaðir,“ sagði Nanna Margrét. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Karítas Í framhaldi spurði Nanna Margrét meðal annars hvort fjármálaráðherra hefði ekki áhyggjur af því að nú þegar væri stöðugleikareglan brotin. Þá spurði hún hvernig ráðherrann metur nýtt frumvarp um tengingu bóta við launavísitölu í samhengi við stöðugleikaregluna. „Eða var þetta vitað fyrir fram þegar allir þessir liðir voru teknir út fyrir sviga? Var það til að geta falið útgjöld eða telur ráðherra að það þurfi kannski að endurskoða hvaða liðir eru teknir út fyrir sviga áður en stöðugleikareglan er reiknuð,“ spurði hún. „Þetta er nánast brandari“ Fjölmargir þingmenn stigu upp í pontu með stuttar athugasemdir og var Stefán Vagn Stefánsson nýkjörinn varaformaður Framsóknarflokksins einn þeirra. Hann sagði einna merkilegast við stöðugleikaregluna að hún væri ekki regla. „Ef hún væri regla fæli hún í sér skýrt, gegnsætt og mælanlegt viðmið um árlega aukningu útgjalda, væri gagnsæ í framkvæmd, takmarkaði í reynd svigrúm stjórnvalda til útgjaldaaukningar og leiddi til skýrra viðbragða eða afleiðinga ef hún væri brotin,“ sagði hann. Frétt af mbl.is Hafa takmarkaða trú á stöðugleikareglunni Hann benti á að þrátt fyrir stöðugleikaregluna hefðu útgjöld í fjárlögum ársins 2026 hækkað um minnst 9% milli ára. „Þetta er nánast brandari: 9% útgjaldaaukning er meira en þrefalt 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans og meira en tvöfalt það krónutöluviðmið sem vísað er til í fjárlögum 2026, sem er 3,7%.“ Brandarinn sé sá að stór hluti 9% aukningarinnar felist í útgjaldaliðum sem eru undanþegnir í sjálfri reglunni. „Dýrustu ákvarðanir stjórnvalda eru teknar út úr viðmiðinu og þá er auðvitað ekkert að hindra að útgjöld hækki um 9% milli ára, jafnvel um 50% ef liðirnir sem hækka milli ára eru einmitt undantekningar reglunnar,“ sagði hann. Þannig sé stöðugleikan ekki regla. „Þetta er regluheiti utan um undanþágur. Stöðugleikareglan er platregla,” sagði hann. Stefán Vagn Stefánsson varaformaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Eyþór Reglan gefist vel Daði Már gaf lítið fyrir gagnrýni stjórnarandstöðuþingmanna. Hann sagði r egluna hafa gefist vel og að hún þjóni tilgangi sínum. Hann sagði stöðugleikareglunni ætlað að tryggja að ekki séu teknar ákvarðanir um aukin útgjöld ríkissjóðs án þess að þau séu fjármögnuð. „Stöðugleikinn sem reglan leiðir af sér er mikilvægur fyrir sjálfbærni opinberra fjármála til lengri tíma litið og með því hagkerfisins alls. Það er ekki eðlisbreyting frá fyrra fyrirkomulagi enda viðverandi verkefni opinberra fjármála að tryggja þetta jafnvægi.“ Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. mbl.is/Eyþór Uppgjör ÍL-sjóðs hafi mikil áhrif Reglan komi í veg fyrir útgjaldaaukningu vegna tímabundins ábata sem gæti fallið í ríkissjóð t.d. vegna sveiflna í verði útflutningsafurða sem hafi leitt til viðvarandi útgjaldaaukningar í fortíðinni. „Ástæðan fyrir því að matsfyrirtæki eins og Fitch taka einmitt stöðugleikaregluna upp sem ástæðu fyrir hækkun á lánshæfismati ríkissjóðs er að hún kemur í veg fyrir að ríkisútgjöld vaxi vegna tímabundins ábata ríkissjóðs sem síðan er ekki innstæða fyrir og við höfum hingað til lent í því að senda reikninga inn í framtíðina,“ sagði Daði Már og bætti við að honum væri fyrirmunað að skilja málflutning þingmannanna. Frétt af mbl.is Stöðugleikaregla kynnt á vormánuðum Hvað athugasemdir þingmannanna um 9% útgjaldavöxt varðar sagði Daði Már: „Sama hversu oft háttvirtir þingmenn endurtaka einhverjar möntrur um breytingu á ríkisútgjöldum milli ára þá er það þannig að þegar tekið er tillit til frumgjaldanna, það er að segja við horfum fram hjá áhrifum uppgjörsins ÍL-sjóð sem enginn var ósammála, þá var útgjaldavöxtur á síðasta ári undir meðallagi áratugarins þar á undan.“ Tryggvi fór á kostum á Spáni Staðfesti orðróminn um typpastækkun Nýtt hlaðvarp um norræn fræði Vatíkanið tekur ekki þátt í friðarnefnd Trumps Ég negldi honum eins fast og ég gat Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert „Það verður bara að koma í ljós“ Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Tryggvi fór á kostum á Spáni Staðfesti orðróminn um typpastækkun Nýtt hlaðvarp um norræn fræði Vatíkanið tekur ekki þátt í friðarnefnd Trumps Ég negldi honum eins fast og ég gat Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Ragnar Þór deilir ekki áhyggjunum Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article