Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Erum að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.3.2026 | 16:27 „Erum að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, á fundinum. mbl.is/Eyþór Andrea Sigurðardóttir, Magnea Marín Halldórsdóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Skattahækkanir í fjármálaáætlun Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Óánægja með bankaskatt Mun á endanum lenda á almenningi „Kemur gríðarlega á óvart“ » Fleiri tengdar fréttir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekkert ríki geta skattlagt sig út úr vanda. Ísland sé þar engin undantekning. Hún segir þá leið sem ríkisstjórnin sé að fara ekki vænlega til árangurs. Efnahagstillögur Sjálfstæðisflokksins séu leiðin út úr efnahagsöngþveitinu. Tillögurnar voru kynntar á blaðamannafundi í Valhöll í dag. Guðrún ræddi málið við blaðamann mbl.is að kynningu lokinni. „Við erum tilbúin til að létta róðurinn“ Guðrún segir vinnuna að tillögunum hafa hafist í aðdraganda að fjárlagavinnunni í haust. „Við lögðum fram tillögur í fjárlagaumræðunni og eitthvað af þeim tillögum eru í þessum pakka sem við vorum að kynna hér í dag. Við erum fyrst og fremst að sýna það að sú leið sem ríkisstjórnin er að fara virkar ekki,“ segir hún. „Við viljum sýna fólki að það er til önnur leið. Hún virkar, hún hefur verið margreynd áður og hefur aukið hér velsæld á Íslandi og við getum gert það aftur. Við sjálfstæðismenn erum tilbúin í það verkefni.“ Boðaðar séu í tillögunum skattalækkanir á heimilin og fyrirtækin í landinu upp á 140 milljarða og hagræðing í ríkisrekstri upp á 160 milljarða. „Þetta er auðvitað umtalsvert fé en ég vil í þessu sambandi minna á að á árunum 2013 til 2023, þegar við sjálfstæðismenn vorum að stýra landinu, þá lækkuðum við skatta um yfir 300 milljarða,“ segir Guðrún enn fremur. „Þannig að þetta er hægt. Við viljum fyrst og fremst sýna að við séum tilbúin til að létta róðurinn með heimilum og fyrirtækjum.“ Frétt af mbl.is Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt Högnumst öll á að ríkinu gangi vel Áttu von á að Kristrún og Daði taki upp þetta plagg og geri eitthvað af þessum hugmyndum að sínum? „Ég ætla að vona það. Við erum að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar og þau mega taka hvaðeina úr þessu sem þau vilja. Auðvitað högnumst við öll á því að það gangi vel hjá ríkinu. Það gengur ekki vel núna. Ríkisstjórnin rekur hvert vindhöggið á fætur öðru í baráttunni við verðbólguna. Kristrún Frostadóttir og Daði Már Kristófersson. mbl.is/Karítas Hér eru komnar margar tillögur frá okkur til að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum í landinu. Ég ætla bara að vona að þau lesi þetta vel yfir páskana og geri eitthvað af þessu að sínu.“ Spurð hvort hún hafi áhyggjur af því að mikil skattalækkun auki eftirspurn og ýti þar með undir verðbólgu svarar Guðrún neitandi. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu til þess fallnar og hafi þegar ýtt undir verðbólguna. „Við vöruðum við þeim gjaldskrár- og gjaldahækkunum sem þau fóru í um áramótin, hvort sem það eru kílómetragjöld, vörugjöld, krónutölugjöld eða annað. Við vöruðum við því að þær aðgerðir sem Daði [Már Kristófersson fjármálaráðherra] fór í væru verðbólguhvetjandi. Þau blésu á það og sögðu að við hefðum ekki vit á þessu,“ segir Guðrún og heldur áfram. „Hvað gerðist um áramótin? Verðbólgan hækkaði og hún hækkaði aftur í febrúar. Því miður get ég ekki séð að í fjármálaáætlun séu raunhæfar aðgerðir af hálfu ríkisstjórnarinnar til að koma böndum á verðbólguna, heldur eru þar einmitt fleiri skattahækkanir.“ Geti lækkað vaxtabyrði ríkisins um 45 milljarða Hagræðingartillaga Sjálfstæðisflokksins í ríkisrekstri felur í sér skattalækkanir sem nema um 140 milljörðum en samanteknar nema hagræðingartillögurnar 160 milljörðum. Þar að auki segir Guðrún að horft sé í að losa um eignarhluti ríkisins í eignum upp á 480 milljarða og að það fari eingöngu í að greiða niður skuldir ríkisins. Þar með geti það lækkað vaxtabyrði ríkisins um 45 milljarða. „Það er annað, hitt er hagræðing í rekstri og þetta er eignarsala – en kemur niður þannig að við getum þá minnkað verulega vaxtabyrði ríkisins,“ segir Guðrún. Og þú sérð fyrir þér að þetta sé þá leiðin út úr þessu efnahagsöngþveiti sem við erum í núna? „Já, það er sannað og það vita allir hagfræðingar, og þar á meðal Kristrún [Frostadóttir forsætisráðherra] og Daði Már, að það hefur ekkert ríki nokkurn tíma skattlagt sig út úr vanda. Og við munum ekki geta gert það núna.“ Meiri stuðningur við barnafjölskyldur „Markmið okkar með þessum aðgerðum er að sýna fram á að það er önnur leið. Hún mun veita súrefni til heimila í landinu. Það er svo brýnt núna að við veitum súrefni, að við léttum byrðarnar af fólkinu í landinu sem er að glíma við þessa miklu vaxtabyrði, að ríkið eigi ekki að vera svona ofboðslega íþyngjandi núna á öðrum sviðum.“ segir Guðrún. „Við erum að leggja til margvíslegar skattalækkanir á fjölskyldurnar hvað varðar börn og ég tel það mjög jákvætt skref sem við erum að stíga þar. Við erum að boða meiri stuðning til barnafjölskyldna, að afnema virðisaukaskatt af barnavörum og svo framvegis. Allt til þess að létta fjölskyldunum í landinu hið daglega líf.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Skattahækkanir í fjármálaáætlun Skatturinn gæti leitt til hærri vaxta Óánægja með bankaskatt Mun á endanum lenda á almenningi „Kemur gríðarlega á óvart“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Erum að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar“ Messi snýr aftur Litasamsetningin sem kemur öllum á óvart Klappir semja við Fossa og Bergs Securities Tilkynna nýja stjórann Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi „Mars 2026 fer í sögubækurnar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Gert að endurgreiða þrotabúi 10 milljónir Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Nýjast á mbl.is » „Erum að senda skilaboð til ríkisstjórnarinnar“ Messi snýr aftur Litasamsetningin sem kemur öllum á óvart Klappir semja við Fossa og Bergs Securities Tilkynna nýja stjórann Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Héraðsdómur skammar SKE Vilja eitt skattþrep og hærri persónuafslátt Fyrirhuguð malbikun dugir ekki Flutti umtalsvert magn fíkniefna með Norrænu Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Gert að endurgreiða þrotabúi 10 milljónir Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu

Share this article